Katarar standa þétt að baki emírnum Þórgnýr Einar Albertsson skrifar 8. júlí 2017 06:00 Hvatningarorð skrifuð á risavaxna mynd af emírnum Tamim bin Hamad al-Thani. vísir/afp
Undanfarnar vikur hafa staðið yfir hatrammar deilur á milli Katara og fjögurra annarra arabaríkja, það er Sádi-Arabíu, Bareins, Egyptalands og Sameinuðu arabísku furstadæmanna. Hafa ríkin fjögur beitt viðskiptaþvingunum og ferðabönnum gegn Katörum. Þá hafa sendiherrar ríkjanna verið kallaðir heim frá Katar og skorið hefur verið á stjórnmálasamband við ríkið. Sádi-Arabar fara fyrir bandalaginu gegn Katörum. Segja þeir helstu ástæðuna fyrir aðgerðum sínum þá að Katarar fjármagni hryðjuverkasamtök og brjóti þar með samkomulag Persaflóaríkja. Þá gagnrýna Sádi-Arabar jafnframt tengsl Katara og katörsku sjónvarpsstöðvarinnar Al Jazeera við stjórnvöld í Íran. Katarar segjast aftur á móti hafa aðstoðað Bandaríkin í stríðinu gegn hryðjuverkum, einkum ISIS. Undir lok júnímánaðar sendu ríkin fjögur Katörum lista með þrettán kröfum sem Katarar áttu að uppfylla ef þeir vildu fá viðskiptaþvingunum aflétt. Því neituðu Katarar í vikunni.Áhrifin óljós „Við eigum sjálfstæða sjóði sem geyma nærri þrefalda landsframleiðslu Katars, við eigum gjaldeyrisforða seðlabankans,“ sagði Ali Sharif al-Emadi, fjármálaráðherra Katars, við The Times í vikunni. Sagðist hann þá ekki hafa áhyggjur af viðskiptabanninu. Katarar ættu einfaldlega nógu mikla peninga til þess að það skipti ekki máli. „Lánshæfi Bareins og Egyptalands er í ruslflokki. Ef þú lítur til Sádi-Arabíu þá sérðu að þeir eiga í miklum fjárhagsörðugleikum. Hvergi á svæðinu er meiri hagvöxtur en hjá okkur,“ sagði al-Emadi. Benti hann á að hagvöxtur í Katar væri nærri helmingi meiri en í Sameinuðu arabísku furstadæmunum, þar sem næstmestur hagvöxtur er á svæðinu. En þótt fjármálaráðherrann sé fullviss um að Katarar þurfi ekkert að óttast er óhjákvæmilegt að vandamál fylgi viðskiptaþvingunum nágrannaríkjanna. Greindi Washington Post til að mynda frá því að áttatíu prósent allra matvæla í Katar séu fengin frá nágrannaríkjunum. Til að sporna gegn skorti á matvælum hafa Katarar leitað til Tyrkja og Írana. Hafa Íranar nú þegar sent flugvélar, fullar af ávöxtum og grænmeti, til Katars og hyggjast Tyrkir gera slíkt hið sama.Utanríkisráðherrar Sameinuðu arabísku furstadæmanna og Sádi-Arabíu á blaðamannafundi í vikunni.vísir/afp Gera nýjar kröfur Seint á fimmtudag barst tilkynning frá utanríkisráðherrum ríkjanna fjögurra. Hétu þeir því að grípa til allra tiltækra ráða til að „standa vörð um réttindi ríkjanna og öryggi og jafnvægi á svæðinu“. Kenndu þeir Katörum um að reyna að spilla fyrir og grafa undan öryggi Persaflóaríkja. Í tilkynningunni segir að ríkin fjögur líti nú á áður gerðar kröfur sem ógildar og er búist við því að nýjar og strangari kröfur verði gerðar til Katara á næstunni. Er því ljóst að afar stirt er á milli ríkjanna og ekki er útlit fyrir að deilan leysist í bráð. Á mánudag mun Rex Tillerson, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, ferðast til Kúveits til að reyna sitt besta til að koma á sáttum. Kúveit hefur staðið á milli Katara og ríkjanna fjögurra í hlutverki sáttasemjara undanfarnar vikur. Emírinn orðinn þjóðhetja „Við munum streyma út á götu til að berjast fyrir hann,“ sagði hinn 32 ára gamli verkfræðingur Ahmed al-Kuwari í samtali við Reuters í gær. Vísaði hann þar til Tamim bin Hamad al-Thani, emírsins af Katar. Emírinn er orðinn eins konar þjóðhetja í undanförnum átökum og líta fjölmargir Katarar á hann sem verndara landsins gegn ofríki Sádi-Araba. Í katörskum fjölmiðlum er fjallað um að þúsundir skrái sig í herinn og að Katarar skjóti fast á Sádi-Araba á samfélagsmiðlum. Og fyrir utan eitt húsa fjölskyldu emírsins í höfuðborginni Doha safnast fólk saman til að skrifa hvatningarorð á risavaxna mynd af emírnum.Kröfurnar þrettánLoka Al Jazeera og tengdum stöðvumLoka öðrum fjölmiðlum sem ríkið fjármagnarLoka herstöð Tyrkja í Katar og hætta hernaðarsamstarfi við Tyrkland í KatarDraga úr samskiptum við ÍranReka íranska hermenn frá KatarSkera á tengsl við hryðjuverkasamtök á borð við Bræðralag múslima, ISIS, al-Kaída og HezbollahHætta að skýla hryðjuverkamönnum í KatarHætta afskiptum af innanríkismálum ríkjanna fjögurraHætta að gefa eftirlýstum ríkisborgurum ríkjanna katarskan ríkisborgararéttSvipta þá eftirlýstu ríkisborgararéttiGreiða skaðabætur fyrir ofangreind brotSæta eftirliti næstu tíu árSamræma stjórnmálastefnu ríkisins við stefnu annarra Persaflóa- og arabaríkja
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar Innlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent „Von okkar er að lík Lúlla finnist og við getum jarðað hann“ Innlent „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Innlent Markmið að kanna aðstæður en ekki björgun Innlent Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Erlent Fjörutíu föngum fylgt úr landi fyrstu níu mánuði ársins Innlent Gefur meirihlutanum falleinkunn Innlent „Ljóst að þetta snýst um rekstur borgarinnar“ Innlent Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Innlent Fleiri fréttir Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Sjá meira