Fótbolti

Sundsvall tapaði fjórða leiknum í röð

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Kristinn Freyr var að venju í byrjunarliði Sundsvall.
Kristinn Freyr var að venju í byrjunarliði Sundsvall. vísir/getty
Það gengur hvorki né rekur hjá Íslendingaliðinu Sundsvall í sænsku úrvalsdeildinni.

Sundsvall hefur tapað fjórum leikjum í röð, síðast í dag fyrir Sirius, 1-2.

Kristinn Freyr Sigurðsson var í byrjunarliði Sundsvall og lék allan leikinn. Hann hefur leikið 10 deildarleiki á tímabilinu og skorað eitt mark. Kristinn Steindórsson var ekki í liði Sundsvall í dag.

Sundsvall komst yfir með marki Jonathans Morsay á 12. mínútu. Liðið hélt forystunni fram á 73. mínútu þegar Jesper Arvidsson jafnaði metin.

Þegar þrjár mínútur voru komnar fram yfir venjulegan leiktíma skoraði Philip Haugland svo sigurmark Sirius. Lokatölur 1-2, Sirius í vil.

Sundsvall er í 13. sæti deildarinnar með 11 stig, þremur stigum frá fallsæti.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×