Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, heimsótti gesti sumarbúðanna í Reykjadal í dag eftir að þrír gestir sumarbúðanna höfðu óskað þess sérstaklega að hann kæmi í opinbera heimsókn.
Starfsmenn Reykjadals skrifuðu forsetanum tölvupóst þess efnis að hann væri hjartanlega velkominn og Guðni tók boðinu fagnandi. Hann mætti í blíðuna í Reykjadal gestunum, honum sjálfum og fjölskyldu sinni, til mikillar ánægju.
Forsetanum bauðst að taka þátt í dagskrá sumarbúðanna ásamt því að skoða litríkasta leikvöll landsins sem staðsettur er á svæðinu. Guðni var leystur út með gjöfum og þar á meðal var bolur sem prýddi handmálaða mynd af forsetanum sjálfum.
Viðtal við Andrés Pál Baldursson, forstöðumann Reykjadals, og Guðna Th. Jóhannesson, má sjá hér að neðan.
Innlent