Ragnar Bragi stimplaði sig inn með tveimur mörkum í toppslagnum | Sjáðu mörkin Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 27. júlí 2017 21:10
Keflavík og Fylkir skildu jöfn, 3-3, í uppgjöri tveggja efstu liðanna í Inkasso-deildinni í kvöld. Ragnar Bragi Sveinsson, sem Fylkir fékk á láni frá Víkingi R. fyrr í vikunni, skoraði tvö mörk í sínum fyrsta leik fyrir Árbæjarliðið í sumar. Seinna mark Ragnars Braga kom á 88. mínútu þegar hann jafnaði metin í 3-3 sem urðu lokatölur leiksins. Fylkir er því áfram með tveggja stiga forskot á Keflavík á toppi deildarinnar. Marko Nikolic kom Keflavík í 1-0 á 23. mínútu eftir skelfileg mistök Arons Snæs Friðrikssonar í marki Fylkis en Ragnar Bragi jafnaði metin sex mínútum fyrir hálfleik. Lasse Rise, nýi Daninn í herbúðum Keflvíkinga, kom heimamönnum yfir á nýjan leik á 64. mínútu en sjö mínútum síðar jafnaði Albert Brynjar Ingason metin með sínu sjöunda marki í sumar. Aðeins tveimur mínútum eftir jöfnunarmark Alberts kom Rise Keflavík yfir í þriðja sinn í leiknum. Það mark dugði þó ekki til sigurs því Ragnar Bragi jafnaði metin tveimur mínútum fyrir leikslok eins og áður sagði. Mörkin úr leik Keflavíkur og Fylkis má sjá í spilaranum hér að ofan. Þór færðist nær efstu liðunum með 2-0 sigri á Þrótti á heimavelli. Aron Kristófer Lárusson og Orri Freyr Hjaltalín skoruðu mörk Þórsara sem hafa verið sjóðheitir upp á síðkastið. Norðanmenn hafa unnið fimm af síðustu sex leikjum sínum og gert eitt jafntefli. Þór er með 25 stig í 4. sæti deildarinnar, tveimur stigum á eftir Þrótti sem er í sætinu fyrir ofan. Selfoss lyfti sér upp í 5. sæti deildarinnar með 0-2 útisigri á Gróttu. Elvar Ingi Vignisson skoraði bæði mörk Selfyssinga sem voru einum fleiri frá 29. mínútu þegar Gróttumaðurinn Andri Þór Magnússon var rekinn af velli. Grótta er í ellefta og næstneðsta sæti deildarinnar með átta stig, þremur stigum frá öruggu sæti.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Enski boltinn Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Enski boltinn Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Enski boltinn Gísli kom af fjöllum þegar talið barst að Ljungberg Sport Ronaldo var skilinn eftir heima Fótbolti Fjórtán ára drengur gaf sig fram við lögreglu Sport Þjálfari Hákonar grét eftir leik Fótbolti Lést aðeins tveimur árum eftir að hún varð Evrópumeistari Sport „Drengurinn minn á skilið að hans sé minnst með ást en ekki hatri“ Enski boltinn Fleiri fréttir Fer frá Stjörnunni í FH Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Sjá meira