Óli Stefán ákallar stuðningsmenn Grindvíkinga: Markmiðin liggja í því að gera betur en Grindavík hefur gert áður Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 23. júlí 2017 15:52 Óli Stefán og lærisveinar hans ætla sér stóra hluti í seinni umferð Pepsi-deildar karla. vísir/anton
Óli Stefán Flóventsson, þjálfari Grindavíkur í Pepsi-deild karla, ákallar stuðningsmenn liðsins á Facebook-síðu knattspyrnudeildar Grindavíkur í dag. Grindavík er með 21 stig í 2. sæti Pepsi-deildarinnar og með sigri á Stjörnunni í kvöld jafnar liðið topplið Vals að stigum. Hingað til hafa Grindvíkingar verið sparir á yfirlýsingar og talað um að aðal markmið liðsins sé að bjarga sér frá falli. Nú er komið aðeins annað hljóð í strokkinn en á Facebook segir Óli Stefán að Grindvíkingar séu búnir að setja sér ný og háleitari markmið. „Markmiðin liggja í því að gera betur en Grindavík hefur gert áður. Safna fleiri stigum en við höfum gert áður og skrá okkur í bækur knattspyrnusögu Grindavíkur,“ skrifar Óli Stefán. Hann var í liði Grindavíkur sem endaði í 3. sæti efstu deildar árin 2000 og 2002. Það er besti árangur Grindavíkur í efstu deild. Árið 2000 fengu Grindvíkingar 30 stig og tveimur árum síðar fékk liðið 29 stig. Besti árangur Grindvíkinga í 12 liða deild náðist 2008 þegar þeir gulu enduðu í 7. sæti með 31 stig. Óli Stefán hvetur stuðningsmenn Grindavíkur til að fjölmenna á Samsung-völlinn í Garðabæ í kvöld og styðja við bakið á nýliðunum sem hafa komið svo á óvart í sumar. Grindavík hefur styrkt sig í félagaskiptaglugganum og fengið þá Simon Smidt og Fransisco Eduardo Cruz Lemaur. Sá síðarnefndi lék með Grindvíkingum í Inkasso-deildinni í fyrra. Leikur Stjörnunnar og Grindavíkur hefst klukkan 20:00 og verður sýndur í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport HD. Þá verður hægt að fylgjast með leiknum í beinni textalýsingu á Vísi.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Óhuganlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Enski boltinn Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Enski boltinn Ronaldo var skilinn eftir heima Fótbolti Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Enski boltinn Gísli kom af fjöllum þegar talið barst að Ljungberg Sport Fjórtán ára drengur gaf sig fram við lögreglu Sport Þjálfari Hákonar grét eftir leik Fótbolti Lést aðeins tveimur árum eftir að hún varð Evrópumeistari Sport Fleiri fréttir Fer frá Stjörnunni í FH Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Sjá meira