Valtteri Bottas segir ekkert standa í vegi fyrir því að hann geti unnið Lewis Hamilton og Sebastian Vettel í titilbaráttu. Hann segir frammistöðu sína undanfarið sanna að hann geti gert tilkall til heimsmeistaratitilsins.
Bottas hefur náð fimm sinnum á verðlaunapall í röð og hann hefur þar með minnkað bilið töluvert í heimsmeistarakeppni ökumanna. Hann er 33 stigum á eftir Vettel sem leiðir heimsmeistaramótið.
„Ég get orðið heimsmeistarai. Það eru enn níu keppnir eftir, ég hef fulla trú á að ég geti unnið Lewis og Sebastian. Ég hef nú þegar gert það í ár,“ sagði Bottas í samtali við Motorsport Week.
„Ég er alltaf að verða betri og betri. Það eru engin takmörk hjá mér. Ég myndi aldrei segja að andstæðingar mínir séu betri en ég. Ég hef trú á mér,“ bætti Finninn við.
„Það er skýrt innan liðsins að við fáum báðir jöfn tækifæri. Við fáum sama búnað og það er enginn númer eitt eða tvö. Ég er í baráttunni um heimsmeistaratitilinn og þetta snýst um minn feril. Ég vil ekki vera í skugganum af Lewis,“ sagði Bottas að lokum.

