Koeman: Þurfum líka að kaupa framherja Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 17. ágúst 2017 15:30 Ronald Koeman, stjóri Everton. Vísir/Getty
Það hefur gengið á miklu á félagaskiptamarkaðnum hjá Everton í sumar en félagskipti Gylfa Þórs Sigurðssonar frá Swansea gengu loksins í gegn í gær. Ronald Koeman, stjóri Everton, segist þó ekki vera með fullmótaðan leikmannahóp enn þá. „Við þurfum að semja við framherja,“ sagði Koeman á blaðamannafundi í gær. „Það vita allir að við misstum Romelu Lukaku (til Manchester United) en nú erum við komnir með Wayne Rooney, Sandri Ramirez og nú Gylfa.“ „Kannski að þeir þrír geti samanlagt bætt upp fyrir þau mörk sem við missum með Lukaku en við þurfum einn til viðbótar sem getur spilað sem nía.“ „Þegar maður spilar í Evrópukeppni, og við skulum vona að við komumst þangað, og ensku úrvalsdeildinni er ekki nóg að vera bara með einn eða tvo framherja.“ Olivier Giroud var orðaður við Everton í sumar en franski sóknarmaðurinn ákvað að vera um kyrrt í herbúðum Arsenal. Everton mætir í kvöld Hajduk Split í fyrri viðureign liðanna í umspilsumferð Evrópudeildar UEFA og ljóst að tíminn er að verða naumur fyrir Koeman að finna nýjan framherja. „Við vitum að það er mögulegt að ná í góða leikmenn en sú staðreynd að við spilum ekki í Meistaradeildinni flækir málin.“ Næsti leikur Everton í ensku úrvalsdeildinni verður gegn Manchester City á mánudagskvöld.
Enski boltinn Mest lesið „Hvernig getur þetta gerst á fótboltaleik?“ Fótbolti Ægir Þór óttaðist að ferlinum væri lokið Körfubolti Svíar syrgja handboltahetju: „Svo djöfullega ósanngjarnt“ Handbolti Messi keypti spænskt fótboltafélag Fótbolti Tyrkneska hlaupatilraunin mistókst Sport Vignir Vatnar sneri upp á Evrópumeistara Sport Alexander Helgi frá KR í Njarðvík Íslenski boltinn Cristiano Ronaldo ældi inn í klefa Fótbolti Eiður Smári með eldræðu um Chelsea: „Ég hefði ekki sofið í fjóra daga“ Enski boltinn Ofurhlaupari lést á skoska hálendinu Sport Fleiri fréttir Lærisveinar Lampard geta tryggt sér sæti í úrvalsdeildinni Rose sagður taka við af Iraola Villa gæti sent Chelsea í Meistaradeild Evrópu Segir stuðningsmönnum Arsenal að njóta, ekki gagnrýna Fagnað titli á 24 leikja fresti en segir nú bless Eiður Smári með eldræðu um Chelsea: „Ég hefði ekki sofið í fjóra daga“ „Hverjum er ekki sama hvað fólki finnst?“ Manchester United stjarna í bann fyrir að blóta Dómarinn í leik Man. City og Arsenal fæddur í Manchester Iraola yfirgefur Bournemouth Sjáðu tíu United-menn tapa fyrir Leeds „Við verðum að muna að við erum Liverpool“ Rooney segir að Man City hafi sálfræðilegt tak á Arsenal „Ein af verstu ákvörðunum sem ég hef séð“ „Ég sagði dómaranum frá því að hann togaði í hárið á mér“ Hártog og hörmungar heimamanna þegar Leeds fagnaði á Old Trafford Sjáðu miðvörð Man. United fá rautt spjald fyrir hártog Útskýrir hegðun sína: „Meinti ekkert illt með því“ Styttist í að Mainoo skrifi undir nýjan samning Áfall fyrir Tottenham: Fyrirliðinn frá út tímabilið Tottenham að landa Robertson en það er einn stór hængur á Telur að Tottenham falli: „Þeir eru afleitir“ Sjáðu hvernig City rúllaði yfir Chelsea og vandræði Spurs jukust Öruggt hjá City sem eykur á skjálfta Skyttanna Spurs áfram í fallsæti og fyrirliðinn grátandi af velli Sjáðu unglinginn og Salah skora og mörkin sem komu Arsenal í klípu Táningurinn í stuði í dýrmætum sigri Liverpool Dramatík og Meistaradeildarvon lifir góðu lífi „Þetta er högg í andlitið“ Skjálfti í Skyttunum Sjá meira