Reynir að lægja öldurnar: „Eftir leikinn talaði ég í reiði og pirringi“ Sindri Sverrisson skrifar 14. október 2026 22:29 Lisandro Martínez hefur verið harðlega gagnrýndur fyrir ummæli sín í gærkvöld. Getty/James Gill „Eftir leikinn talaði ég í reiði og pirringi yfir því að ná ekki þeim úrslitum sem við vildum öll,“ segir Manchester United-maðurinn Lisandro Martínez í yfirlýsingu á Instagram vegna þeirra miklu viðbragða sem hann fékk við ummælum sínum í Madrid í gærkvöld.
Martínez beindi spjótum sínum að stjórnendum United í sjónvarpsviðtölum eftir 2-0 tapið gegn Atlético Madrid í Meistaradeild Evrópu. Hann kallaði sérstaklega eftir meiri metnaði hjá Jason Wilcox, yfirmanni knattspyrnumála hjá United, í gagnrýni sinni á það hve lítið félagið hefði gert í leikmannamálum í sumar þrátt fyrir að hafa unnið sig aftur inn í Meistaradeild Evrópu síðasta vor. Sparkspekingar hafa í kjölfarið baunað á Martínez og sagði Jamie Carragher til að mynda agalegt að heyra hann tala með þessum hætti. Wayne Rooney sagði Martínez hafa sýnt liðsfélögum sínum vanvirðingu. „Ég tel hann hafa gengið of langt þarna. Það er knattspyrnustjórans að svara fyrir svona en svona mál eiga að vera innanbúðarmál,“ sagði Rooney. Í yfirlýsingu sinni í kvöld segist Martínez hafa verið reiður en að hann gerði kröfur til félagsins því hann vildi sjá það keppa um stærstu titlana. Allir yrðu að hafa metnað til þess. „Ég veit að fyrst og fremst erum það við, leikmennirnir, sem verðum að skila árangri, og ég set sjálfan mig í fremstu röð hvað þá ábyrgð snertir. Við þurfum að gera enn meiri kröfur til okkar sjálfra og vinna saman að því að koma Manchester United aftur á toppinn,“ sagði í yfirlýsingunni en hana má lesa í heild hér að neðan í lauslegri þýðingu. Yfirlýsing Lisandro Martínez: „Í ljósi alls þess sem sagt hefur verið um ummæli mín í gær langar mig að deila nokkrum hugleiðingum um það sem ég sagði og hvernig mér líður. Eftir leikinn talaði ég í reiði og pirringi yfir því að ná ekki þeim úrslitum sem við vildum öll. Þeir sem þekkja mig vita hvernig ég lifi fyrir fótboltann, af ástríðu, eljusemi og gríðarlegri sigurþrá. Og þegar hlutirnir ganga ekki upp hjá okkur er það sárt, sérstaklega þegar maður er fulltrúi félags með sögu og stöðu Manchester United. Orð mín endurspegla hvernig mér líður og hversu mikið ég vil sjá þetta félag keppa um stærstu titlana. Þessar miklu kröfur eru hluti af því hvernig ég sé fótboltann og þeirri ábyrgð sem fylgir því að klæðast þessari treyju. Þegar ég tala um að vilja meira á ég við þann metnað sem við verðum öll að hafa sem hluti af þessu félagi. Að halda áfram að vaxa, verða sterkari og hafa allt sem við þurfum til að keppa á hæsta stigi. Þetta eru kröfur sem við verðum öll að gera til okkar sjálfra, og það byrjar hjá mér. Ég veit að fyrst og fremst erum það við, leikmennirnir, sem verðum að skila árangri og ég set sjálfan mig í fremstu röð í þeirri ábyrgð. Við þurfum að gera enn meiri kröfur til okkar sjálfra og vinna saman að því að koma Manchester United aftur á toppinn. Ég hef trú á liðsfélögum mínum, knattspyrnustjóranum okkar og öllum sem vinna að því að hjálpa þessu félagi að sækja fram. Ég er sannfærður um að leiðin fram á við sé að halda áfram að vinna saman, af metnaði og eljusemi. Markmið mitt hefur verið það sama frá fyrsta degi: að vinna, keppa á hæsta stigi og gefa allt sem ég á fyrir þetta merki.“
Enski boltinn Manchester United Mest lesið „Stelpurnar vissu ekki einu sinni af þessu“ Fótbolti Uppsagnir hjá Arsenal Enski boltinn KSÍ fái rúma þrjá milljarða frá FIFA Fótbolti Segja starf Elísabetar hanga á bláþræði en leikmenn lofa hana Fótbolti Tvenna Haalands dugði skammt gegn PSG Fótbolti Einkunnir Íslands: Þrjár stóðu upp úr í veislunni í Dalnum Fótbolti Barcola braut ísinn með látum í Austurríki Fótbolti Rooney baunar á Ronaldo: „Allt rangt við þetta“ Fótbolti Þorði ekki á Instagram eftir leikinn Fótbolti Óljós skilaboð vekja upp spurningar: „Ég er orðlaus“ Enski boltinn Fleiri fréttir Reynir að lægja öldurnar: „Eftir leikinn talaði ég í reiði og pirringi“ Hvað verður um Martinez eftir gagnrýnina? Uppsagnir hjá Arsenal Óljós skilaboð vekja upp spurningar: „Ég er orðlaus“ Lét gamminn geisa og fær að heyra það Nítján ára Frakki þakkaði Lampard fyrir traustið með stórleik Náð að búa til „við á móti öllum“-stemningu Með áskorun fyrir sjóðheitan Andra Lucas „Ótrúleg tenging á milli þeirra“ Tveir leikmenn Arsenal meiddust eftir leik: „Aldrei gerst áður“ Til átaka kom eftir stórleikinn á Anfield Sjáðu mörkin: Sekt City sló leikmenn ekki út af laginu Hvers vegna eru City-menn með banana í stúkunni? Fúll heim af gamla heimavellinum Liverpool - Manchester City 0-3| Hristu kærurnar af sér og unnu stórsigur Segir Barcola ekki í vandræðum Kyssti Bentancur eftir rauða spjaldið Sjáðu sigurmark Guimaraes og markaveislu Chelsea Sjáðu enn eitt markið hjá Andra Lucasi Dramatík á Portman Road Manchester United - Tottenham 1-1 | Tíu menn Tottenham björguðu stigi Henderson í stuði í stórsigri Magnað mark dugði fyrir sigri Kúvending í máli uppljóstarans sem óttast um líf sitt Áttu í sáttaviðræðum við ensku úrvalsdeildina „Hvernig dirfast þeir að skemma eitthvað sem er hluti af DNA þessa lands“ Gakpo og Isak missa af stórleiknum Setja félagið á sölu tveimur árum eftir kaup Haaland rýfur þögnina: „Verðum öll að standa saman“ Xhaka sekur um að falsa Covid-19 vottorð Sjá meira