Enn er leitað að sænskri blaðakonu Jóhann Óli Eiðsson skrifar 14. ágúst 2017 06:00 Leitað var í kafbátnum en ekkert lík fannst. Vísir/AFP
Peter Madsen, danskur auðkýfingur og kafbátasmiður, er í haldi lögreglu grunaður um manndráp af gáleysi. Leit stendur yfir að sænskri blaðakonu sem síðast sást í för með manninum í kafbáti hans. Málið er hið óvenjulegasta. Hin þrítuga Kim Wall fór ásamt Madsen í kafbátinn Nautilius til þess að rita grein um bátinn. Báturinn sökk hins vegar í för þeirra á föstudag og var Madsen bjargað. Ekkert hefur spurst til Wall. Leitað var í kafbátnum í gær og sást hvorki tangur né tetur af Wall. Að sögn Madsen hafði hann skilað Wall upp á þurrt land áður en kafbáturinn sökk og segist hann ekki hafa hugmynd um afdrif hennar eftir það. Daninn gaf þá skýringu að Nautilius, sem eitt sinn var stærsti kafbátur heims í einkaeigu, hefði sokkið vegna bilunar en það stangast á við athugun lögregluyfirvalda sem telja að honum hafi verið grandað af ásettu ráði. Kærasti Wall tilkynnti hvarf hennar eftir að hún skilaði sér ekki úr ferðinni. Leit stendur yfir og hafa leitarmenn ekki gefið upp von um að hún finnist á lífi. Madsen verður í 24 daga varðhaldi á meðan á rannsókn stendur.
Danmörk Morðið á Kim Wall Mest lesið Lá við árekstri á meðan flugumferðarstjórar horfðu á úrslitaleikinn Innlent Dómur Sigmars fyrir að nauðga stúlku á göngustíg stendur Innlent Samþykktu samhljóða að sparka ferðaþjónustufyrirtæki úr Bakkafirði Innlent Flosi fer í formanninn: „Ég lít ekki á mig sem fulltrúa neinna fylkinga“ Innlent Kennarar óttist vanefndir Innlent Sjáðu herbergið sem Samfó vill en Sjallar neita að yfirgefa Innlent „Við erum ekki að horfa á Excel-skjöl, við erum að horfa á börn“ Innlent Framkvæmdir stöðvaðar að hluta Innlent Kröfu foreldranna vísað frá Innlent Halda herberginu og ekkert verður úr setuverkfalli Innlent Fleiri fréttir Morð á kóranbrennumanni gæti tengst erlendu ríki Líkfundur í ánni þar sem síðast sást til tvíburasystra Segja að flytja þurfi 2.500 börn frá Gasa til að bjarga lífi þeirra Nærri helmingur segir Danmörku standa ógn af Bandaríkjunum Búið að ná upp gögnum úr flugstjórnarklefa farþegavélarinnar Kenndi Biden, flugmönnum, flugumferðarstjórum og „DEI“ um slysið Þyrlan í hefðbundnu æfingarflugi Merkel setur ofan í við arftaka sinn vegna stuðnings öfgahægrimanna Taka norsku stjórnina úr sambandi vegna orkumála Búið að ná 28 líkum upp úr ísilögðu vatninu Íhaldsmenn taka höndum saman við öfgamenn í aðdraganda kosninga Rússneskir heimsmeistarar meðal farþega vélarinnar Norska stjórnin gæti sprungið í dag Fjórðungur barna enn í bleyju í aðlögun fyrir grunnskóla Kóranbrennumaður skotinn til bana í beinni í Svíþjóð UNRWA hættir líklega allri starfsemi á Gasa og Vesturbakkanum í dag Nítján lík sögð hafa fundist eftir flugslys í Washington Gruna að DeepSeek byggi á gögnum ChatGPT Tekur formlega völd í Sýrlandi en heitir kosningum Fjórir Norðmenn látnir eftir snjóflóð í Ölpunum Vill senda þrjátíu þúsund innflytjendur til Guantánamo Draga minnisblað til baka eftir mikla óreiðu Fjöldi rúmenskra málaliða gafst upp í Rúanda Tengja hrinu sprenginga í Svíþjóð við glæpasamtök Líf norsku stjórnarinnar hangir á bláþræði vegna fjórða orkupakkans Segir Selenskí ólögmætan og ófæran um að skrifa undir eitt né neitt Alþjóðastofnanir draga saman seglin vegna Trump Býður milljónum starfsmanna að hætta gegn átta mánaða biðlaunum Áttatíu og fimm prósent vilja ekki tilheyra Trump Segir Rússa hafa ætlað að ráða fleiri iðnaðarleiðtoga af dögum Sjá meira