Keflvíkingar finna lyktina af Pepsi-deildinni | Sjáðu sigurmarkið Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 11. ágúst 2017 21:12
Lasse Rise tryggði Keflavík gríðarlega mikilvægan sigur á Þrótti R. í 16. umferð Inkasso-deildarinnar í kvöld. Lokatölur 1-0, Keflavík í vil. Rise kom til Keflavíkur í júlí-glugganum og þessi 31 árs gamli Dani hefur komið frábærlega inn í liðið. Markið í kvöld var hans þriðja í fjórum leikjum fyrir Keflavík. Með sigrinum náði Keflavík fjögurra stiga forskoti á toppi deildarinnar þegar sex umferðum er ólokið. Þróttur er í 3. sætinu með 30 stig, jafn mörg og Fylkir sem er í sætinu fyrir ofan. Fylkismenn töpuðu 1-0 fyrir Leikni R. í Breiðholtinu í kvöld. Ingvar Ásbjörn Ingvarsson skoraði eina mark leiksins á 21. mínútu. Fylkir hefur gefið eftir að undanförnu og aðeins unnið einn af síðustu fimm deildarleikjum sínum. Með sigrinum lyftu Leiknismenn sér upp í 7. sæti deildarinnar.Björgvin Stefánsson hefur skorað 10 mörk í Inkasso-deildinni í sumar.vísir/andri marinóÁ Nesinu gerðu Grótta og Haukar 1-1 jafntefli. Gróttumenn komust yfir með sjálfsmarki Baldvins Sturlusonar á 53. mínútu en Björgvin Stefánsson jafnaði metin fyrir Hauka sex mínútum fyrir leikslok. Þetta var tíunda mark Björgvins í sumar en hann er markahæstur í deildinni ásamt Keflvíkingnum Jeppe Hansen. Haukar endurheimtu 4. sætið með stiginu sem þeir fengu í kvöld en Grótta er áfram í ellefta og næstneðsta sæti deildarinnar, nú með níu stig, fjórum stigum frá öruggu sæti. Ekkert mark var skorað í leik Þórs og ÍR fyrir norðan. Þórsarar eru í 6. sæti deildarinnar en ÍR-ingar í því tíunda. Upplýsingar um úrslit og markaskorara eru fengnar frá Fótbolta.net.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Óhuganlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Enski boltinn Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Enski boltinn Ronaldo var skilinn eftir heima Fótbolti Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Enski boltinn Gísli kom af fjöllum þegar talið barst að Ljungberg Sport Fjórtán ára drengur gaf sig fram við lögreglu Sport Þjálfari Hákonar grét eftir leik Fótbolti Lést aðeins tveimur árum eftir að hún varð Evrópumeistari Sport Fleiri fréttir Fer frá Stjörnunni í FH Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Sjá meira