Pálmi Rafn: Ótrúleg ákvörðun að taka Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 17. september 2017 18:44 Pálmi Rafn og félagar urðu af dýrmætum stigum í toppbaráttunni. vísir/andri marinó
Fyrirliði KR, Pálmi Rafn Pálmason, var að vonum gífurlega svekktur í lok leiks enda var mark dæmt af liði hans á lokamínútunum í markalausu jafntefli gegn KA. Hann var fyrst spurður út í markið sem dæmt var af. „Ég sá þetta ekki greinilega en hann skal rétt vona það að þetta hafi verið rétt ákvörðun hjá honum. Þetta var ótrúleg ákvörðun að taka og ef þetta var ekki rétt hjá þeim þá veit ég ekki hvað ég á að segja. Þetta er í annað skipti á leiktíðinn sem mark er tekið af okkur á lokamínútunum. Upp á Skaga var tekið algjörlega löglegt mark af okkur og ég ætla rétt að vona að þetta hafi verið rétt hjá þeim. Þetta er ógeðslega pirrandi.“ Pálmi var því næst spurður út í gang leiksins sem var ekki mikið fyrir augað í þangað til að markið var dæmt af á 95. mínútu leiksins. „Þetta var baráttuleikur, mikið um háa bolta, slagsmál og tæklingar og svo höfuðhögg. Sjálfsagt ekki skemmtilegasti leikur fyrir áhorfendur að horfa á en þetta var barátta milli tveggja góðra liða. Mögulega voru liðið búin að lesa hvort annað fyrir leikinn en við náðum ekki okkar spili 100% í gang og þetta var mikil barátta og læti sem tóku sinn toll. Við náðum ekki boltanum niður á jörðina og spila okkar leik.“ KR var líklegast að kveðja Evrópusætið með úrslitunum í dag og var Pálmi beðinn um að leggja mat á seinustu tvær umferðirnar. „Við höldum áfram þangað til við getum ekki meir, ég veit ekki hvernig við stöndum í dag. Við verðum bara að halda áfram þangað til að við erum algjörlega út úr þessu.“
Pepsi Max-deild karla Tengdar fréttir Umfjöllun: KR - KA 0-0 | Markalaust í Vesturbænum KR hefur gengið illa á heimavelli að undanförnu og í dag varð engin breyting þar á. 17. september 2017 19:00 Mest lesið Sturluð staðreynd um afrek Eyglóar Sport Trent tryggði sigurinn gegn lánlausu liði Leicester Enski boltinn Landsliðsmaður lést í fjögurra bíla árekstri Fótbolti Stórt skref en KSÍ í kapphlaupi við tímann Fótbolti Úlfarnir unnu United aftur Enski boltinn Segir Akureyri á hjara veraldar og varð hugfanginn í Sjallanum Sport Kraftanna óskað á öðrum vígstöðvum Handbolti Frestuðu fögnuði Liverpool með sýningu Enski boltinn Brynjar Karl tekur slaginn og segist ætla að bjóða sig fram sem forseta ÍSÍ Körfubolti Kunnu ekki reglurnar og komust að því í beinni útsendingu Fótbolti Fleiri fréttir „Hagsmunum félagsins best borgið með sölu á leikmanninum“ Ástbjörn missir af næstu leikjum KR ÍA og Vestri mætast inni Stefán Gísli fékk fimm ára samning hjá Val Bestu Mörkin: „Kannski ekki fallegasta markið“ Fram og Þór Ak. áfram í bikarnum HK vann Lengjudeildarslaginn og fór áfram í bikarnum Tveir fimmtán ára með þrjú fyrir KR | Adam Ægir skoraði strax fyrir Val „Varst þú ekkert í bláu spurningunum?“ Um afhroð Stjörnunnar í Kópavogi: „Ég spáði þessu jafntefli“ Stjarnan og Vestri áfram eftir fjölda marka og mikla dramatík Breiðablik ekki í vandræðum og mögnuð endurkoma Þróttar Skagamenn og Selfyssingar í sextán liða úrslit Bestu mörkin: Helena hélt að Þóra hefði allt aðra skoðun á þessu Ítalíudvölin tók á andlegu hliðina: „Vil finna gleðina aftur“ Uppgjörið: ÍBV - Víkingur 3-0 | Eyjamenn flugu áfram Mosfellingar fundu markaskóna og Fylkismenn orðnir níu fyrir hálfleik Fimmtán ára og skoraði í fyrsta byrjunarliðsleiknum í efstu deild Segir að öllum hafi verið sama um kvennaliðið í KR Uppbótartíminn: „Draumar eru til þess að stefna hátt“ „Þetta var skrýtinn leikur“ „Höfum afsannað allar spár sem hafa komið og ætlum að halda því áfram“ „Hugur minn er bara hjá henni“ Leik lokið: Valur - FH 0-0 | Markalaust í leik sem litaðist af ljótum meiðslum Viðar Örn að glíma við meiðsli Uppgjörið: Víkingur - Þór/KA 1-4 | Engin hamingja hjá heimakonum Uppgjörið: Tindastóll - FHL 1-0 | Stólarnir sýndu enga miskunn Bærinn seldi tækin úr ræktinni: „Vona að Fjarðabyggð sjái að sér“ Segir vandræðalegt að Valur hafi ekki unnið KR „Skemmtilegt að þroskast þannig sem leikmaður“ Sjá meira
Umfjöllun: KR - KA 0-0 | Markalaust í Vesturbænum KR hefur gengið illa á heimavelli að undanförnu og í dag varð engin breyting þar á. 17. september 2017 19:00