Tímabundið helvíti í frönskunni Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 12. september 2017 06:00 Fanndís á ferðinni í leiknum gegn Paris FC. mynd/nelson fatagraf
Landsliðskonan Fanndís Friðriksdóttir spilaði sinn fyrsta leik með liði Olympiennes Marseille í efstu deild franska fótboltans á sunnudag. Fanndís var á sínum stað á vinstri kantinum í 2-1 tapi gegn liði Paris FC en leikurinn var í 2. umferð deildarinnar sem er nýhafin. „Við spilum 4-3-3 og við hægri kantmaðurinn og framherjinn rúllum bara. Það er flæði á okkur. Ekki ósvipað og er í Breiðabliki,“ segir Fanndís. Hún viðurkennir að hafa verið nokkuð týnd framan af leik og þurfi smá tíma til að stimpla sig inn með nýjum liðsfélögum. „Þetta verður mjög skemmtilegt og ég er mjög ánægð að þetta sé byrjað.“ Fanndís yfirgaf Kópavogsliðið á dögunum eftir að hafa vakið athygli erlendra félaga eftir frammistöðu sína á EM í Hollandi. Fanndís skoraði eina mark Íslands á mótinu í 2-1 tapi gegn Sviss og var hættulegasti sóknarmaður Íslands. Fanndís hefur áður reynt fyrir sér erlendis, með Kolbotn og Arna-Björnar í Noregi. Hún var ekki uppnumin af dvölinni þar og segir allt annað og betra umhverfi hjá Marseille. „Þetta er allt öðruvísi. Bæði getulega og umgjörðin. Þótt það vanti að sýna leikina í sjónvarpinu eins og heima á Íslandi og einn Pepsi-markaþátt í viku,“ segir Fanndís. Mikið sé lagt í æfingarnar sem eru klukkan níu á morgnana. „Mér finnst það geggjað enda er ég morgunmanneskja,“ segir Fanndís. Þjálfari, markmannsþjálfari, fitnessþjálfari og framherjaþjálfari taka á móti stelpunum á æfingu auk sjúkraþjálfara, læknis og annars starfsliðs.Fanndís leikur á varnarmenn Paris FC.mynd/nelson fatagrafFagmennskan er í fyrirrúmi að sögn landsliðskonunnar sem samdi við franska félagið til eins árs. Liðið er að megninu til skipað frönskum leikmönnum en þar er þó einnig leikmaður frá Mexíkó og tveir frá Kanada. „En þær tala frönsku,“ segir Fanndís sem býr ekki jafnvel að tungumálinu. Raunar ekkert enda valdi hún þýsku í menntaskóla. „Ég fer í frönskuskóla í nóvember en ætla fyrst að koma mér fyrir í íbúðinni og komast í takt. Mér er sagt að fyrstu fimm mánuðirnir séu algjört helvíti en svo fer þetta að síast inn. Ég fékk franskan málfræðilykil að gjöf frá tengdó. Það er byrjunin,“ segir Fanndís. Ekki er hægt að ganga að því vísu að Frakkar tali góða ensku. Það er tilfellið heilt yfir í leikmannahópi Marseille. „Enskan er ekkert svakalega góð en ég ætla að gefa þeim að það eru allir að reyna. Þau reyna að aðstoða mig og æfa sig sjálf. Það er gríðarlega gott að hafa þessar kanadísku. Þær geta þýtt fyrir mig.“ Fanndís kom til Íslands á sunnudagskvöldið og var ekkert yfir sig hrifin veðrinu. Haustið er komið til Íslands þótt íbúar í Marseille geti enn gengið að tuttugu gráðunum og sól. „Ég bjóst ekki við svona veðri hérna heima,“ segir Fanndís sem hafði ekki farið út úr húsi þegar blaðamaður ræddi við hana á mánudagsmorgun. Fram undan eru æfingar fyrir fyrsta leikinn í undankeppni HM 2019, gegn Færeyingum á fimmtudaginn. „Hallbera [Gísladóttir, landsliðskona] sendi snap í morgun og spurði hvort hún ætti að taka með sér úlpu til Íslands,“ segir Fanndís en Hallbera spilar með Djurgården í Svíþjóð. Fanndís átti auðvelt með að svara fyrirspurn herbergisfélagans í landsliðinu játandi.Myndirnar með fréttinni voru birtar með góðfúslegu leyfi fransks ljósmyndara, Nelson Fatagraf. Myndasyrpu hans úr leiknum má sjá hér.
Fótbolti Mest lesið „Í fyrsta sinn sem við vinnum ósanngjarnt“ Íslenski boltinn Pínleg mistök Neuer gáfu hraðasta mark í sögu deildarinnar Fótbolti Aflýstu leik vegna skutlukasts Fótbolti Uppgjörið: Fram - KR 1-2 | KR styrkti stöðu sína í öðru sæti Íslenski boltinn Líktu Álftanesi við Bayern München Körfubolti Manchester United - Tottenham 1-1 | Tíu menn Tottenham björguðu stigi Enski boltinn Óvænt truflun í Njarðvík Körfubolti Mark tekið af Vinicius og fékk rautt spjald í staðinn Fótbolti „Þetta var alltaf mitt mark“ Fótbolti „Vonsviknir að ná ekki að nýta yfirburðina“ Fótbolti Fleiri fréttir Aflýstu leik vegna skutlukasts „Í fyrsta sinn sem við vinnum ósanngjarnt“ „Þetta var alltaf mitt mark“ „Vonsviknir að ná ekki að nýta yfirburðina“ Pínleg mistök Neuer gáfu hraðasta mark í sögu deildarinnar Uppgjörið: Fram - KR 1-2 | KR styrkti stöðu sína í öðru sæti Mark tekið af Vinicius og fékk rautt spjald í staðinn Kristian Nökkvi og félagar nokkrum stigum frá toppnum Sigurganga Börsunga heldur áfram Svekkjandi tíu manna janftefli hjá Frey „Við ætlum að vinna rest“ Linta eftir fallið: „Enginn bjóst við þessu“ ,,Menn þurfa að bera meiri virðingu fyrir Stjörnunni en þetta” „Orðið algjört vígi að koma hérna“ Fiskaði rautt spjald í sigri Sjáðu enn eitt markið hjá Andra Lucasi Dramatík á Portman Road Manchester United - Tottenham 1-1 | Tíu menn Tottenham björguðu stigi Uppgjörið: Þór - ÍBV 1-0 | Felldu Eyjamenn og halda í vonina Stjarnan - KA 0-3 | Halda sér ofan fallsvæðis Valur - FH 3-5 | Öruggir eftir skrautlegan sigur Henderson í stuði í stórsigri Mikael lagði upp og meiddist en Logi í basli gegn Salah Magnað mark dugði fyrir sigri „Reynum að kveikja í hræðslu hjá þeim“ „Það er aldrei lognmolla í kringum Óskar“ Utan vallar: Það á enginn séns í kónginn Tap í heimalandinu reyndist síðasti naglinn í kistuna Kúvending í máli uppljóstarans sem óttast um líf sitt Uppgjörið: Njarðvík - Tindastóll 77-85 | Vinna í deildum Evrópu og hér heima Sjá meira