Niðurstöður kosninga um sjálfstæði verði gerðar ógildar Þórgnýr Einar Albertsson skrifar 28. september 2017 06:00 Haider al-Abadi krefst ógildingar kosninga Kúrda. Fréttablaðið/EPA
Haider al-Abadi, forsætisráðherra Íraks, fór í gær fram á að yfirvöld í Íraska Kúrdistan ógiltu niðurstöður nýafstaðinna kosninga um sjálfstæði svæðisins. Kosið var á mánudag og greiddu 92 prósent kjósenda með því að lýsa yfir sjálfstæði en kjörsókn var rúm sjötíu prósent. Írakar, sem og alþjóðasamfélagið, hafa gagnrýnt kosningarnar harðlega. Krafðist íraska ríkisstjórnin þess að þær yrðu ekki haldnar og lýsti þær ólöglegar. Al-Abadi sagði í gær að hann myndi „aldrei nokkurn tímann ræða niðurstöðuna“ við yfirvöld á svæðinu og kallaði eftir því að Kúrdar hæfu viðræður á hátt sem stenst stjórnarskrá landsins. Kúrdar hafa áður sagt að jákvæð útkoma kosninganna myndi ekki þýða tafarlausa sjálfstæðisyfirlýsingu. Hún myndi fremur veita umboð til að hefja viðræður við Íraksstjórn og nærliggjandi ríki um sjálfstæði. „Ef þau vilja hefja viðræður verða þau að ógilda niðurstöður kosninganna sem og kosningarnar sjálfar,“ sagði al-Abadi. Enn fremur sagði hann forgangsmál sitt nú vera að vernda íbúa ríkisins og lofaði hann því að verja Kúrda gegn hvaða árásum sem er.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Innlent Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Erlent Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Erlent Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Innlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Erlent Sama jarmið í sauðfé og ferðamönnum Innlent Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins Innlent Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent Fleiri fréttir Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Sjá meira