Fjárfestingafélagið Helgafell hagnast um 1.130 milljónir Hörður Ægisson skrifar 20. september 2017 10:00 Sá sem stýrir fjárfestingum Helgafells er Jón Sigurðsson, fjárfestir og fyrrverandi forstjóri FL Group.
Helgafell eignarhaldsfélag, sem er í jafnri eigu Bjargar Fenger, Ara Fenger og Kristínar Vermundsdóttur, hagnaðist um 1.134 milljónir króna í fyrra og jókst hagnaðurinn um liðlega 670 milljónir á milli ára. Eigið fé Helgafells nam ríflega 4,2 milljörðum króna í árslok 2016 en stjórn fjárfestingafélagsins leggur ekki til að greiddur verði arður til hluthafa á árinu 2017. Afkoma félagsins af verðbréfaeign í eigu samstæðunnar var jákvæð um samtals 1.152 milljónir á síðasta ári. Á meðal helstu eigna í verðbréfasafni Helgafells er 2,6 prósenta hlutur í olíufélaginu N1 og 6,64 prósenta hlutur í tryggingafélaginu TM. Sá sem stýrir fjárfestingum Helgafells er Jón Sigurðsson, fjárfestir og fyrrverandi forstjóri FL Group, en hann er eiginmaður Bjargar Fenger. Jón á meðal annars sæti í stjórn N1. Félög í eigu Helgafells hafa á þessu ári meðal annars komið að kaupum á ríflega helmingshlut í Stoðum, sem á 8,87 prósenta hlut í evrópska drykkjarvöruframleiðandanum Refresco Garber, og að Gámaþjónustunni.Fréttin birtist fyrst í Markaðnum, fylgiriti Fréttablaðsins um viðskipti og efnahagsmál.
Mest lesið Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Viðskipti innlent Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Viðskipti innlent Náðu að halda kaupunum leyndum Viðskipti innlent „Stærsta tölvuinnbrot sögunnar“ hjá rafmyntarisa Viðskipti erlent Tekjur Nova í hæstu hæðum Viðskipti innlent Getur ekki lengur orða bundist Viðskipti innlent Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Viðskipti innlent Klakki, áður Exista, gjaldþrota Viðskipti innlent „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Viðskipti innlent Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki Viðskipti innlent Fleiri fréttir Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Sjá meira