KA hefði orðið meistari ef að það hefði verið flautað af í hálfleik Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 4. október 2017 16:00 KA-menn fagna hér marki í sumar. Vísir/Eyþór
Nýliðar KA stóðu sig vel á sínu fyrsta tímabili í Pepsi-deildinni í sumar og enduðu í sjöunda sæti deildarinnar. KA-liðið var í efri hlutanum stærsta hluta mótsins en gaf aðeins eftir í lokin og datt niður í sjöunda sætið þar sem liðið vann aðeins einn sigur í síðustu fimm leikjum sínum. KA-menn voru hinsvegar liða sterkastir í fyrri hálfleik og hefðu orðið Íslandsmeistarar í ár hefði verið flautað af í hálfleik. Markatala liðsins fyrir hlé var 20-11 en ekkert lið skoraði meira í fyrri hálfleik. KA-menn voru yfir í hálfleik í 10 af 22 leikjum sínum og voru í jafnri stöðu í átta leikjum til viðbótar. KA-liðið var undir í hálfleik í aðeins fjórum leikjum og einn af þeim var lokaleikurinn á móti ÍBV í Vestmannaeyjum. KA var einnig undir í hálfleik í útileik á móti Val, í heimaleik á móti KR og í útileik á móti Fjölni. Annað lið sem hefði verið miklu ofar í deildinni ef að leikirnir hefðu klárast í hálfleik var lið Eyjamanna sem náði fjórða besta árangrinum í fyrri hálfleik í Pepsi deildinni í sumar. Ólafsvíkingar hefðu líka bjargað sér frá falli ef að það hefði verið flautað af í hálfleik en nafnar þeirra úr Fossvoginum hefðu aftur á móti fallið úr deildinni. KR og Grindavík hefðu líka dottið niður um nokkur sæti ef allt hefði verið búið eftir 45 mínútur.Stig liðanna ef að það hefði verið flautað af í hálfleik. 1. KA 38 stig (+9, 20-11) 2. Valur 37 stig (+11, 18-7) 3. FH 35 stig (+7, 15-8) 4. ÍBV 34 stig (-1, 16-17) 5. Breiðablik 33 stig (+2, 15-13) 6. Stjarnan 31 stig (+3, 18-15) 7. KR 28 stig (+2, 13-11) 8. Fjölnir 25 stig (-3, 12-15) 9. Víkingur Ó. 24 stig (-7, 10-17) 10. Grindavík 21 stig (-5, 11-16) 11. ÍA 20 stig (-8, 10-18) 12. Víkingur R. 16 stig (-10, 8-19)
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Óhuganlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Ronaldo var skilinn eftir heima Fótbolti Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Enski boltinn Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Enski boltinn Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Enski boltinn Gísli kom af fjöllum þegar talið barst að Ljungberg Sport Fjórtán ára drengur gaf sig fram við lögreglu Sport Þjálfari Hákonar grét eftir leik Fótbolti Lést aðeins tveimur árum eftir að hún varð Evrópumeistari Sport Fleiri fréttir Fer frá Stjörnunni í FH Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Sjá meira