Dagur Kár í banni í leiknum á móti bróður sínum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 19. október 2017 12:00 Dagur Kár Jónsson. Vísir/Anton
Það verður ekkert að því að bræðurnir Dagur Kár og Daði Lár Jónssynir mætist í Domino´s deild karla í körfubolta í kvöld. Lið þeirra bræðra, Keflavík og Grindavík, mætast í TM höllinni í Keflavík í þriðju umferð deildarinnar. Grindavíkurliðið hefur unnið báða sína leiki en Keflvíkingar eru með einn sigur og eitt tap. Dagur Kár Jónsson var rekinn út úr húsi í leik Grindavíkur gegn Haukum í síðustu umferð og Aga- og úrskurðarnefnd KKÍ hefur nú dæmt hann í eins leiks bann vegna þessa. Grindvíkingar munu sakna hins 22 ára gamla Dags Kár í þessum leik en hann er með 13,0 stig og 6,5 stoðsendingar að meðaltali í leik í fyrstu tveimur umferðunum. Það voru margir spenntir fyrir því að sjá bræðurna eigast við enda er stoðsendingahæstu leikmenn sinna liða í upphafi móts og báðir komnir í stór hlutverk hjá þessum Suðurnesjarisum.Daði Lár Jónsson, sem er 20 ára og tveimur árum yngri en Dagur, hefur byrjað tímabilið vel með Keflavík en hann er með 9,5 stig, 5,5 fráköst og 5,0 stoðsendingar að meðaltali í fyrstu tveimur leikjunum. Daði Lár skoraði meðal annars tvær ævintýralegar flautukörfur í fyrsta leiknum á móti Val þar sem hann var með 17 stig og 7 stoðsendingar. Dagur Kár og Daði Lár eru báðir uppaldir í Stjörnunni en spila nú með þeim liðum sem faðir þeirra, Jón Kr. Gíslason, lék með á glæsilegum ferli sínum. Það verður hinsvegar bræðraslagur í Domino´s deild karla í kvöld því það mætast bræður í leik Tindastóls og Þórs frá Akureyri. Það eru þeir Ragnar og Viðar Ágústssynir, Viðar í Tindastóli og Ragnar í Þór.
Dominos-deild karla Mest lesið Hvað afleiðingar hefur fallið á West Ham ? Fótbolti Tottenham bjargaði sér og Liverpool tók eina lausa sætið Enski boltinn Antonelli styrkir stöðu sína í efsta sætinu Formúla 1 Bruno bætti metið eða hvað? Enski boltinn Stúkan: FH í miklum vandræðum Fótbolti Como í Meistaradeild í fyrsta skipti í sögu félagsins Fótbolti Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Körfubolti Hafþór Júlíus misnotað lyf síðustu átján ár Sport Daníel Tristan lagði upp í tapi Malmö Fótbolti Bolton flaug upp en Benoný og félagar sátu eftir Enski boltinn Fleiri fréttir Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Tryggvi upp fyrir Elvar fyrir uppgjörið á Tenerife Einum sigri frá því að fara í úrslit í fyrsta sinn á öldinni Elvar byrjar vel hjá sínu nýja félagi Halldór Garðar kveður Keflavík Martin stigahæstur í svekkjandi tapi Úr fríi á Spáni til Íslands en endaði aftur á Spáni „Eins og ljósastaur fyrir drukkinn mann“ Fetar í fótspor föður síns og þjálfar Keflavík Þrír ættliðir Íslandsmeistara: „Nú þarftu fimm í viðbót til að ná mér“ Elvar Már óvænt til Tenerife út tímabilið Pirraður yfir því hvernig Baldur yfirgaf Stjörnuna Grét alla Reykjanesbrautina „Er týpan sem er til í að taka nýjar áskoranir“ Gáfu miðann sinn og misstu af Grindavík verða Íslandsmeistari Mætti brjálaður til leiks eftir að hafa misst af verðlaunum Sjáðu öll tilþrif Pargo: „Aldrei séð annað eins á fjölum á Íslandi“ „Stjörnufólk er pirrað“ Ól upp dólg í nýkrýndum Íslandsmeisturum Myndaveisla: Sigurhátíð Grindvíkinga í Síkinu Uppgjörið og viðtöl: Tindastóll - Grindavík 101 - 109 | Grindavík er Íslandsmeistari Þakkaði guði eftir leik sem gæti verið hans síðasti Tárvot sigurstund bræðranna frá Grindavík Baldur tekur við Álftnesingum Áfall fyrir Grindavík: Kane og Óli meiddir og ekki með í kvöld Vilja ekki sjá annað lið fagna titlinum í Síkinu, aftur „Veit ekki hvort það er hægt en vonandi reyna þau“ Tókst takmarkið eftir stórskemmtilega seríu Magnaðar meistaramyndir úr Njarðvík „Þegar þær eru að spila svona þá veit ég ekki hvað maður getur gert“ Sjá meira