Hrafn fær ekki 15 ár í viðbót Tryggvi Páll Tryggvason skrifar 12. október 2017 16:30 Hrafn við sumarbústað sinn Vísir
Hæstiréttur sýknaði í dag Orkuveitu Reykjavíkur að kröfu Hrafns Gunnlaugssonar um að hann ætti ótímabundinn afnotarétt af sumarbústað sínum við Elliðárvatn. Héraðsdómur hafði áður veitt Hrafni 15 ár afnotarétt en Hrafn áfrýjaði þeim dómi.Hús Hrafns er eitt er eitt af 25 bústöðum við Elliðavatn sem Orkuveita Reykjavíkur hefur talið nauðsynlegt að hverfi á næstu árum vegna vatnsverndarsjónarmiða. Fjölskylda Hrafns hefur haft rétt til afnota af lóðinni frá 1927 og átt þar sumarhús frá 1960. Haustið 2014 óskaði Hrafn eftir því að fá að byggja við bústaðinn en svörin voru heldur á aðra leið en hann hafði vænst. Honum var sagt að hann þyrfti að hafa sig í burtu og ekki stæði til að veita nein byggingarleyfi til viðbyggingar.Sjá einnig:Hrafn fær 15 ár í viðbótHrafn höfðaði því mál á hendur Orkuveitunni og krafðist hann þess að fá ótímabundinn afnotarétt en til vara 75 ára rétt til afnota. Deila Orkuveiturnnar og Hrafns um hvort gerður hafi verið samningur um afnot húseigandans af landinu á grundvelli munnlegs vilyrðis þáverandi formanns stjórnar Orkuveitu Reykjavíkur, Alfreðs Þorsteinssonar. Ekki var gengið frá málinu á formlegan hátt innan Orkuveitunnar en héraðsdómur komst að þeirri niðurstöðu að afnotaréttur Hrafns af sumarbústaðnum og lóðinni gæti ekki staðið lengur en í 15 ár.Í dómi Hæstaréttar segir að aldrei hafi verið gengið frá formlegum samningu um afnotarétt á milli Orkuveitunnar og fjölskyldu Hrafns. Þá var ekki fallist á að með því að byggingaryfirvöld hefðu veitt samþykki til endurbyggingar sumarhússins á árinu 2004 hefði Orkuveitan samþykkt afnot Hrafns af lóðinni til framtíðar.
Tengdar fréttir Hrafn fær 15 ár í viðbót Hrafni Gunnlaugssyni eru heimil afnot af sumarbústaði sínum við Elliðavatn næstu 15 árin samkvæmt dómi Héraðsdóms Reykjavíkur. 21. júní 2016 13:00 Hrafni gert að hypja sig með sitt frá Elliðavatni Hrafn Gunnlaugsson hefur stefnt Orkuveitu Reykjavíkur sem vill reka hann frá Elliðavatni og brjóta niður sumarhús hans þar. 15. mars 2016 10:07 Mest lesið Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Innlent Telur starfsmenn hæfa til að meta stjórnsýslu yfirmanns síns Innlent Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum Innlent Minnst þrjátíu sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Erlent Munda fallbyssurnar við landamærin Erlent Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Erlent Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Erlent Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Erlent Tvær lægðir á leiðinni Veður Fleiri fréttir Bein útsending: Löggæsluáætlun næstu fimm ára kynnt Bein útsending: Loftslagsdagurinn 2026 - Loftslagsbreytingar og öryggi Telur starfsmenn hæfa til að meta stjórnsýslu yfirmanns síns Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Hildi og Inga Þór sagt upp „Skorið niður til þess eins að skera niður“ Engar vísbendingar fundist en formlegri leit lokið Sveinn R. Eyjólfsson er látinn Féll úr stiga í vinnunni og hlaut höfuðhögg „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Ekkert bendi til þess að eldgosahrinunni sé að ljúka „Galin vinnubrögð“ Þyrlan kölluð til: Maðurinn fannst heill á húfi „Hrikalegt högg“ Engin ástæða til að hamla för Portúgalsfarans lengur „Fyrst og fremst erfitt“ Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Nota rústamyndavél við leit að Lúðvík Fækka um rúmlega sjötíu stöðugildi Húðflúr á hálsi kom upp um síbrotamann „Íbúar gera það ekki að leik sínum að panta flug á síðustu stundu“ Ríkisstjórnin samþykkir frumvarp ráðherra um herta innflytjendalöggjöf Segir Íslendinga á tímamótum og verða að bregðast við Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Sorg hjá borgarstarfsmönnum og leitaraðgerð í Grindavík Gefur meirihlutanum falleinkunn Hætta skapaðist eftir að límt var fyrir linsu hraðamyndavélar „Ljóst að þetta snýst um rekstur borgarinnar“ Sjá meira
Hrafn fær 15 ár í viðbót Hrafni Gunnlaugssyni eru heimil afnot af sumarbústaði sínum við Elliðavatn næstu 15 árin samkvæmt dómi Héraðsdóms Reykjavíkur. 21. júní 2016 13:00
Hrafni gert að hypja sig með sitt frá Elliðavatni Hrafn Gunnlaugsson hefur stefnt Orkuveitu Reykjavíkur sem vill reka hann frá Elliðavatni og brjóta niður sumarhús hans þar. 15. mars 2016 10:07