Vara við nýjum faraldri Þórgnýr Einar Albertsson skrifar 26. október 2017 06:00 Vont er að gögn manns séu tekin í gíslingu. Fréttablaðið/EPA
Umfangsmikil gagnagíslatökuárás sem hefur hrellt fyrirtæki í Rússlandi og Úkraínu undanfarið hefur dreift úr sér og meðal annars komið upp í Þýskalandi, Japan og Bandaríkjunum. Bandaríska netöryggissveitin CERT sagði í fyrrinótt að sveitinni hefði borist fjöldi tilkynninga um smit víða um heim og bandaríska ríkið varaði við útbreiðslunni í gær. Veiran sem tekur gögnin í gíslingu er kölluð Bad Rabbit og er hún nýjasti gagnagíslatökufaraldurinn. Hefur hún valdið einna mestum skaða fyrir rússneska fjölmiðla og úkraínsk samgöngufyrirtæki. Gagnagíslatökur hafa verið mikið í umræðunni á árinu en fyrr á þessu ári komu upp tvær skæðar veirur af þessum toga er nefndust NotPetya og Wannacry. Wannacry kom upp á Íslandi og voru að minnsta kosti tvö tilfelli staðfest. Hins vegar kom ekki upp staðfest tilfelli af sýkingu af völdum NotPetya-veirunnar. Líkt og NotPetya og Wannacry læsir Bad Rabbit gögn sýktrar tölvu og krefst greiðslu gegn því að aðgangur að gögnunum verði opnaður á ný. Varað er við því að verða við kröfunni enda ekki tryggt að aðstandendur gíslatökunnar standi við loforðið.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Erlent „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Innlent Nóg sé komið af Trump Erlent Lægðin fyrr á ferðinni Veður Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent „Noregur sökkar“ Erlent Fleiri fréttir Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Sjá meira