Helmut Marko, ráðgjafi Red Bull liðsins segir að rússneski Formúlu 1 ökumaðurinn Daniil Kvyat eigi ekki afturkvæmt til liðs við Red Bull eða Toro Rosso.
Kvyat hefur verið á mála hjá Red Bull allan sinn feril í Formúlu 1. Hann var færður til systurliðsins Toro Rosso eftir slakt gengi á síðasta ári. Sæti hans hjá Red Bull tók Max Verstappen.
Kvyat ók í bandaríska kappsktrinum um liðna helgi. Hann tók þá sæti Pierre Gasly sem hafði öðrum hnoöppum að hneppa í Súperformúlu mótaröðinni í Japan. Kvyat ók þá við hlið Brendon Hartley sem þreytti frumraun sína í Formúlu 1. Hartley var kallaður inn í Toro Rosso liðið til að fylla skarð Carlos Sainz sem færði sig yfir til Renault fyrir bandaríska kappaksturinn.
Í samtali við Bild sagði Marko að trúin á getu Kvyat hefði dvínað og að hann sé að mati liðsins ekki rétti maðurinn fyrir það
„Kvyat mun ekki snúa aftur. Við teljum hann ekki færan um viðsnúning til framtíðar,“ sagði Marko.
„Gasly og Hartley munu klára tímabilið sem ökumenn Toro Rosso, svo munum við meta stöðuna,“ bætti Marko við að lokum.
Ferill Kvyat í Formúlu 1 er því að öllum líkindum að endastöð kominn. Hann hefur ekki verið orðaður við annað lið í mótaröðinni.
Daniil Kvyat á ekki afturkvæmt til Red Bull

Tengdar fréttir

Bílskúrinn: Titillinn réðst í Texas
Lewis Hamilton vann sinn fimmta kappakstur í Texas, einungis sex Formúlu 1 keppnir hafa farið fram þar svo hann er klárlega fógetinn í Texas.

Jolyon Palmer víkur úr sæti eftir japanska kappaksturinn
Jolyon Palmer hefur staðfest að hann muni ekki aka fleiri keppnir fyrir Renault liðið í ár. Carlos Sainz sem hefur þegar verið lánaður til Renault frá Toro Rosso fyrir næsta ár tekur sæti hans.

Brendon Hartley mun fylla autt sæti hjá Toro Rosso
Brendon Hartley, fyrrum ökumaður í uppeldisakademíu Red Bull liðsins mun taka sæti Carlos Sainz í bandaríska kappakstrinum. Hann mun aka við hlið Daniil Kvyat sem snýr aftur í fjarveru Pierre Gasly.