Organic Human lífræn orkuskot í erli dagsins Innnes kynnir 24. október 2017 11:00 Guðrún Húnfjörð, markaðsstjóri hjá Innnesi. MYND/ERNIR
Organic Human orkuskotin eru auðveld og fljótleg leið til að auka orkuna í erli dagsins. Orkuskotin eru kjörin viðbót við heilbrigðan lífsstíl og fjölbreytt mataræði. Organic Human orkuskotin eru 100% lífræn og þróuð með það að leiðarljósi að uppsprettu jafnvægis og orku sé að finna innra með okkur. Þau innihalda þess vegna nákvæma blöndu af sérvöldum innihaldsefnum og eru því frábær leið til að auka orkuna á annasömum dögum,“ segir Guðrún Húnfjörð, markaðsstjóri hjá Innnesi heildverslun. „Í orkuskotunum er ekki að finna nein aukefni, rotvarnarefni, litarefni eða viðbættan sykur. Auk þess eru þau öll í dökkum glerflöskum en dökkt glerið dregur úr áhrifum útfjólublárra geisla svo allir þeir góðu eiginleikar sem innihaldið hefur til að bera halda sér,“ segir Guðrún. „Skammtímaáhrifin eru orka og vellíðan hér og nú, langtímaáhrifin eru heilbrigðara líferni og hamingja, sem felst í því að vita að þú ert að hugsa vel um bæði þig og náttúruna.“Túrmerik Túrmerik inniheldur curcumin sem er afar öflugt andoxunarefni sem vinnur á bólgum í líkamanum. Það hlutleysir sindurefni og örvar líkamann til að framleiða andoxandi ensím. Þessi blanda af túrmerik, engifer, hafþyrniberjum, appelsínum og eplum er einstaklega öflug blanda með fersku appelsínubragði.Andoxun Grænfæði inniheldur mikið af andoxunarefnum sem stuðla að eðlilegri starfsemi ónæmiskerfisins og verndun frumna gegn oxunarálagi. Þessi blanda af engifer, eplum, grænkáli, spírulínu, hveitigrasi, bygg-grasi og límónu er eins og her sem ræðst á sindurefnin í líkamanum með fersku límónubragði.Engifer Engiferrót inniheldur mjög öflug andoxunarefni sem stuðla að verndun frumna ásamt því að virka sefandi á meltingarveginn og vera bólgueyðandi. Þessi blanda af engifer, rauðrófum, granateplum, sítrónum og chili er hressandi og passlega bragðsterk.
Mest lesið Geta þurft að greiða hátt verð fyrir póstsendar gjafir Viðskipti innlent Persónuleg áætlanagerð fyrir 2026 aldrei verið jafn auðveld og nú Atvinnulíf Hvað græði ég á að leggja aukalega inn á lánið? Viðskipti innlent Algeng meiðsli fótboltamanna kveikjan að appinu sem hún þróaði Atvinnulíf Skipta dekkin máli? Samstarf „Þetta er bara algjörlega galið“ Neytendur Jólakjötið töluvert dýrara í ár Neytendur Sif nýr framkvæmdastjóri Aton Viðskipti innlent Fá dagsektir fyrir villandi verðskrá Neytendur „Enginn í Lottu er á mannsæmandi launum“ Viðskipti innlent Fleiri fréttir Skipta dekkin máli? Einn áhrifamestu markaðsfræðimanna heims með erindi á ÍMARk Gatnamótin opin á ný við Fjarðarkaup Yfir milljón dagskrárliðir sóttir vikulega Greiðsluáskorun Jólagjöf ársins 2025 veltir sigurvegara síðustu tveggja ára úr sessi Ertu þremur mínútum frá draumastarfinu? Kerfi sem virka eins og lungu landeldisstöðva Sjá meira