Þurfti óvænt að lenda vélinni eftir að kona komst að framhjáhaldi eiginmannsins í miðju flugi Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 8. nóvember 2017 16:25 Vélin var á leið frá Doha í Katar til Balí. vísir/getty
Flugvél Qatar Airways þurfti óvænt að lenda í Indlandi á leið frá Doha í Katar til Balí eftir að kona komst að því í miðju flugi að eiginmaður hennar hefði haldið framhjá henni. Konan náði að opna síma mannsins á meðan hann svaf með því að taka í hönd hans og opna símann með þumalputta mannsins. Í símanum voru svo upplýsingar um framhjáhaldið. Fjallað er um málið á vef Guardian en þar segir að hjónin hafi verið á leiðinni til Balí í frí ásamt barni sínu. Konan á að hafa lamið mann sinn eftir að hún komst að framhjáhaldinu og sá flugstjórinn sig knúinn til að lenda í Chennai í Indlandi þar sem áhöfn vélarinnar gat ekki róað konuna. Konan og maðurinn ásamt barni sínu voru ekki með vegabréfsáritun til Indlands en var engu að síður vísað frá borði og hélt vél Qatar Airways áfram áleiðis til Balí. Fjölskyldan eyddi deginum á flugvellinum í Chennai en fór svo um kvöldið til Malasíu með Batik Air. Qatar Airways hefur ekki viljað tjá sig um atvikið og ber við trúnaði við viðskiptavini sína.
Mest lesið Þrír flokkar skipa efstu sætin í nær öllum kjördæmum Innlent „Í versta falli alvarleg forréttindablinda“ Innlent Inga Dögg lést á Skorradalsvatni Innlent Taldi að vegabréfinu hefði verið stolið við Skógafoss Innlent Lögregla með virkt eftirlit við afmæli Hell's Angels Innlent Æðsti yfirmaður NASA: „Fylgjandi því að gera Plútó aftur að reikistjörnu“ Erlent Handtekinn eftir að rottueitur fannst í barnamat Erlent Leist ekki á tillögu um opnun Hormússunds Erlent Töluverður viðbúnaður lögreglu í Kópavogi Innlent „Þetta á náttúrulega ekki að gerast“ Innlent Fleiri fréttir Útilokar ekki frekari hernaðaraðgerðir eða að fleiri hermenn fari heim Æðsti yfirmaður NASA: „Fylgjandi því að gera Plútó aftur að reikistjörnu“ Handtekinn eftir að rottueitur fannst í barnamat Leist ekki á tillögu um opnun Hormússunds Segir Nato nú reyna að skilja ákvörðun um að afturkalla herafla Segir stríðsrekstri lokið og smeygir sér framhjá reglum Þúsundir hermanna kallaðir heim frá Þýskalandi „Slátrarinn frá Bosníu“ við dauðans dyr Ákærður fyrir að hafa stungið tvo gyðinga Safna í sérstakt sjóherlið á Norðurslóðum Vilja nú alþjóðlegt samstarf um Hormússund Ekkert fararsnið á Rússum í Malí Mamdani vill að Bretar skili Koh-i-Noor Bútaði líkið í sundur í uppblásinni sundlaug Trump segist vera að íhuga að draga saman seglin í Þýskalandi Áttu langt símtal Repúblikanar vinna orrustu í kjördæmastríðinu Byltingarvörðurinn herðir tökin á stjórnartaumunum Einn handtekinn grunaður um stunguárás gegn gyðingum Íslenskir jöklar töpuðu mestu í Evrópu Þingmenn klöppuðu óspart fyrir konunginum Afhroð Rússa í Malí: Vígamenn segjast stjórna stórum hluta landsins Ásýnd Trump mun prýða viðhafnarútgáfu vegabréfsins Fyrrverandi forstjóri FBI ákærður fyrir líflátshótun í garð Trump Einn skæðasti glæpamaður Mexíkó gómaður í fráveituröri Játaði að hafa skipulagt hryðjuverk á tónleikum Swift „Mamma mín var skotin í Karli, trúið þið því?“ Repúblikanar fylgja Trump: Árásin sögð sýna nauðsyn þess að klára veislusalinn Aftökum fjölgaði verulega í kórónuveirufaraldrinum Rússnesk lúxussnekkja fór um Hormús-sund án vandræða Sjá meira