Dæmdur til að hrósa fyrrverandi kærustu sinni 144 sinnum Birgir Olgeirsson skrifar 2. nóvember 2017 22:06 Dómarinn átti ekki orð yfir napuryrðum sem hann hafði látið falla í garð konunnar. Vísir/Getty
Þrítugur karlmaður frá Havaii-eyjum í Bandaríkjunum fékk heldur óvenjulegan dóm þegar hann var dæmdur til að senda fyrrverandi kærustu sinni 144 hrós. Fyrir hafði maðurinn, Daren Young, sett sig 144 sinnum í samband við fyrrverandi kærustu sína og sagt allt annað en vinsamlega hluti við hana. Hann hafði áður verið dæmdur til að halda sig fjarri konunni og setja sig ekki í samband við hana. Það var 22. maí síðastliðinn sem maðurinn missti algjörlega stjórn á skapi sínum og hafði 144 sinnum samband við fyrrverandi kærustu sína á einum og hálfum klukkutíma þann dag. Gerði hann það ýmist í gegnum símhringingar eða textaskilaboð. Við réttarhald yfir manninum var ekki farið nákvæmlega yfir hvað maðurinn sagði við konuna, en það var þó það neikvætt og ömurlegt að dómarinn sá sig knúinn til að dæma manninn til að hrósa fyrrverandi kærustu sinni. Hann hefur 144 daga til að hrósa henni 144 sinnum og má ekki endurtaka sama hrósið aftur og aftur. Maðurinn var einnig dæmdur til að greiða 2.400 dollara í sekt, eða því sem nemur um 250 þúsund íslenskra króna, og að sinna samfélagsþjónustu í 200 klukkutíma. Young reyndi hvað hann gat að biðjast afsökunar á þessu athæfi og lofaði að gera þetta ekki aftur. Dómarinn átti hins vegar ekki orð yfir napuryrðum sem hann hafði látið falla í garð konunnar. Maðurinn hafði fyrir þetta setið 157 daga í fangelsi fyrir að rjúfa nálgunarbann gegn konunni.
Mest lesið „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Erlent Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Innlent Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Innlent Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Erlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins Innlent Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Innlent Fleiri fréttir Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Vilja afsökunarbeiðni frá Kim vegna jarðsprengju Ætlar að halda þingsætinu þrátt fyrir rannsókn á svikum Létu sprengjum rigna yfir Kænugarð Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Sjá meira