Höfuðborgarstjórinn flýr Venesúela Þórgnýr Einar Albertsson skrifar 18. nóvember 2017 07:00 Antonio Ledezma, borgarstjóri Karakas, sást í Kólumbíu í gær. Nordicphotos/AFP
Antonio Ledezma, borgarstjóri Karakas, höfuðborgar Venesúela, hefur flúið land. Ledezma er yfirlýstur andstæðingur Nicolas Maduro forseta og hefur verið í stofufangelsi á skrifstofu sinni frá árinu 2014 kjölfar þess að Maduro sakaði hann um að reyna að hrinda af stað áætlun Bandaríkjamanna um valdarán. Þá var hann einnig sakaður um að hvetja til ofbeldis með því að boða til mótmæla. Ledezma flúði stofufangelsi sitt í gær og komst til Kólumbíu. Yfirvöld þar í landi staðfestu komu Ledezma og bauð Andres Pastrana, fyrrverandi forseti ríkisins, Ledezma velkominn í tísti. Venesúelski miðillinn El Nacional greindi frá því að fjölskylda Ledezma hafi flúið land með honum. Þá hafi öryggissveitir ríkisstjórnarinnar gert áhlaup á heimili hans og skrifstofu í kjölfar flóttans. Ledezma var handtekinn á ný í ágúst ásamt Leopoldo López en þeir eru tveir þekktustu stjórnarandstæðingar landsins. Hann var þó aftur færður í stofufangelsi eftir stutta vist í Ramo Verde-herfangelsinu. Tilefni handtökunnar var það að hæstiréttur Venesúela, sem gagnrýnendur segja alfarið á bandi Maduro, sagðist búa yfir upplýsingum um að tvímenningarnir hygðust flýja. Þær handtökur mættu harðri andstöðu Bandaríkjanna. Sagðist Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, vara „einræðisstjórn Maduro“ við því að fara svo illa með „pólitíska fanga“.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Erlent „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Innlent Ætla að rífa umdeilda kaffiskúrinn við Leifsstöð Innlent Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Innlent Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku Innlent Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Erlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Fleiri fréttir Kosningar í Ísrael: Þjóð á krossgötum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Sjá meira