Erlent

Ásakanir um kynferðislegt samband við táningsstúlku hleypa óvæntu lífi í kosningar í Alabama

Kjartan Kjartansson skrifar
Ásakanir um kynferðislega tilburði við unglingsstúlkur virðast hafa skaðað framboð Roy Moore í Alabama þrátt fyrir að hátt í þriðjungur kjósenda séu enn staðfastari í að kjósa hann nú.
Ásakanir um kynferðislega tilburði við unglingsstúlkur virðast hafa skaðað framboð Roy Moore í Alabama þrátt fyrir að hátt í þriðjungur kjósenda séu enn staðfastari í að kjósa hann nú. Vísir/AFP

Ný skoðanakönnun sýnir frambjóðanda demókrata með forystu yfir Roy Moore, frambjóðanda repúblikana, fyrir kosningar um öldungadeildarþingsæti í Alabama. Moore hafði verið með öruggt forskot í skoðanakönnunum en sú nýjasta bendir til þess að ásakanir um samskipti hans við ungar stúlkur hafi áhrif á kjósendur.

Fyrirfram var ekki búist við spennandi kosningum um öldungadeildarsætið sem Jeff Sessions skildi eftir autt þegar hann tók við sem dómsmálaráðherra í ríkisstjórn Donalds Trump. Alabama er eitt af íhaldssömustu ríkjum Bandaríkjanna og Trump hafði öruggan sigur þar í forsetakosningunum í fyrra.

Forskot Moore var að vísu minna en repúblikanar hefðu vænst en hann er afar umdeildur. Honum var tvisvar vikið frá störfum sem dómari í Alabama síðustu tvo áratugina. Í fyrra skiptið neitaði hann að hlýða dómsúrskurði um að fjarlægja minnisvarða um boðorðin tíu sem hann hafði látið reisa fyrir utan hæstarétt Alabama. Í seinna skiptið neitaði hann að framfylgja dómi Hæstaréttar Bandaríkjanna sem lögleiddi hjónabönd samkynhneigðra.

Kjósa frekar barnaníðing en demókrata

Ásakanir nokkurra kvenna  um að Moore hefði sóst eftir kynferðislegu sambandi við þær þegar þær voru táningar en hann á fertugsaldri sem Washington Post sagði frá fyrir helgi hafa nú hleypt mikilli spennu í kosningabaráttuna. Könnun JMC Analytics sýnir nú demókratann Doug Jones með 46% fylgi gegn 42% prósentum Moore.

Þrátt fyrir að demókratar eygi nú möguleikann á áður ólíklegum sigri í Alabama en baráttunni hvergi nærri lokið. Könnunin sýnir vissulega að 38% líklegra kjósenda eru síður líklegir til að kjósa Moore eftir að ásakanirnar komu. Hún sýnir hins vegar einnig að 29% eru enn ákveðnari í að kjósa repúblikanann en áður.

Þó að sumir háttsettir repúblikanar eins og John McCain, öldungadeildarþingmaður frá Arizona, og Mitt Romney, fyrrverandi forsetaframbjóðandi flokksins, hafi fordæmt Moore og hvatt hann til að draga sig í hlé hafa flokksbræður hans í Alabama staðið með honum og gert lítið úr ásökunum.

Sumir þeirra hafa gengið svo langt að fullyrða að jafnvel þó að Moore hefði gerst sekur um barnaníð myndu þeir frekar greiða honum atkvæði en demókrata. Ein kvennanna sem sakar Moore um að hafa haft uppi kynferðislega tilburði við sig var fjórtán ára á þeim tíma.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×