Forsætisráðherrann sagður fangi Sádi-Araba Þórgnýr Einar Albertsson skrifar 11. nóvember 2017 07:00 Saad al-Hariri, fráfarandi forsætisráðherra Líbanons. Nordicphotos/AFP
Líbanska ríkisstjórnin telur að Saad al-Hariri, fráfarandi forsætisráðherra Líbanons sem tilkynnti um afsögn sína um síðustu helgi, sé haldið gegn vilja sínum í Sádi-Arabíu. Þetta hefur CNN eftir heimildarmönnum sínum innan ríkisstjórnarinnar. Vitnaði bandaríski miðillinn í gær í ónefndan heimildarmann sem sagði al-Hariri ekki fá að tjá sig frjálslega í samskiptum sínum við ríkisstjórnina, sem alla jafna er hliðholl Sádi-Arabíu. Jafnframt vissi ríkisstjórn Líbanons ekkert hvað væri á seyði. Fjölmargir miðlar greindu frá því í vikunni, og höfðu eftir nafnlausum heimildarmönnum, að al-Hariri hefði ekki sagt af sér af fúsum og frjálsum vilja. Sádi-Arabar hefðu neytt hann til þess vegna meints árangursleysis í baráttunni við Hezbollah-samtökin. Er hin meinta afsagnarþvingun sögð liður í eins konar köldu stríði Sádi-Arabíu og Írans en Hezbollah eru á bandi Írana. CNN hélt því fram að ummæli hins nafnlausa heimildarmanns væru líkleg til þess að valda titringi innan sádiarabísku ríkisstjórnarinnar. Ráðamenn þar í landi neita því að hafa þvingað al-Hariri til að segja af sér og að halda honum þar í landi gegn vilja sínum. Al-Hariri er með tvöfalt ríkisfang. Auk þess að vera líbanskur ríkisborgari er hann einnig með sádiarabískt ríkisfang. Hann á hús í Riyadh, höfuðborg Sádi-Arabíu, þar sem talið er að hann dvelji um þessar mundir.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Erlent „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Innlent Ætla að rífa umdeilda kaffiskúrinn við Leifsstöð Innlent Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Innlent Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Erlent Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku Innlent Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Fleiri fréttir Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Sjá meira