Heimir: Þjálffræðilegt afrek að koma FH í Evrópukeppni miðað við það sem gekk á Tómas Þór Þórðarson skrifar 10. nóvember 2017 12:00
Heimir Guðjónsson, fyrrverandi þjálfari FH í Pepsi-deild karla í fótbolta, telur það afrek hjá sér að hafa náð 3. sætinu í sumar og þ.a.l. komið liðinu í Evrópukeppni miðað við allt sem gekk á yfir tímabilið. FH hafði ekki endað neðar en í öðru sæti á hverrri einustu leiktíð frá því 2003 og orðið átta sinnum Íslandsmeistari á þeim tíma þar til að liðið endaði í 3. sætinu á eftir Val og Stjörnunni í sumar. Heimir stýrði FH til fimm af þessum átta Íslandsmeistaratitlum en hann vann tvo sem aðstoðarþjálfari og þann fyrsta í sögu FH sem leikmaður og fyrirliði. Þrátt fyrir 18 frábær ár í Kaplakrika var Heimir rekinn frá FH eftir tímabilið en Ólafur Kristjánsson var svo ráðinn þjálfari liðsins. Heimir var rekinn á þannig tímapunkti að hann gat ekki tekið við neinu liði í efstu deild þar sem öll voru búin að ráða. Hörður Magnússon, íþróttafréttamaður 365, verður með ítarlegt viðtal við Heimi í Sportpakkanum á Stöð 2 klukkan 19.10 í kvöld en brot úr því má sjá í spilaranum hér að ofan. Þar spyr Hörður sinn gamla liðsfélaga hvort hann viti hvað fór úrskeiðis í sumar hjá FH-liðinu. „Þetta voru margir samverkandi þættir. Á endanum tel ég að það var þjálffræðilegt afrek að koma þessu liði í Evrópukeppnina miðað við það sem að gekk á. Nú tekur bara nýr þjálfari við og ég ætla bara að vona að FH gangi vel í framtíðinni,“ segir Heimir Guðjónsson. Ítarlegra viðtal verður við Heimi í Sportpakkanum á Stöð 2 í kvöld og á Vísi.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Messi eyddi kvöldinu með Trump Fótbolti Elvar en ekki Friðriksson Körfubolti Óþægileg heimkoma af ÓL: Sátu fyrir henni og eltu upp að bílnum Sport Fram fær hávaxna Hvergerðinginn Íslenski boltinn Viktor fagnaði fyrsta sigrinum gegn félögum sínum í Magdeburg Handbolti Annar þjálfari hættur skömmu fyrir HM Fótbolti Dagskráin: Liverpool vill hefna, Formúlan af stað og mikil spenna í Bónus-deildinni Sport „Ég er bara ekki nógu gáfaður til að geta rýnt almennilega í þessa stöðu“ Handbolti Dómari sleginn niður í kvennaleik Körfubolti Árið enn fullkomið hjá sveinum Guðjóns Vals Handbolti Fleiri fréttir Fram fær hávaxna Hvergerðinginn Þróttarar fyrstir til að vinna Fylki og enn barist um efsta sætið Kani í mark Víkinga „Talaði við nokkur lið en á endanum var Víkingur mest heillandi“ Ejub látinn fara af fjárhagslegum ástæðum Dramatík í Nettóhöllinni FH-ingar kláruðu leikinn en töpuðu Jóhannes Kristinn gengur til liðs við Víking „Hvað er hann að gera hér?“ Keflavík fær víking að láni HM-farinn Cisse strax búinn að kveðja Vestra „Þetta voru orðnar hættulegar aðstæður“ Stjörnukonur burstuðu Þrótt og Þór/KA vann stórt fyrir austan Flautaði leikinn af þegar FH-ingar komu ekki út í seinni hálfleik Tillaga um nýtt knattspyrnufélag í Breiðholti lögð fyrir ársþing KSÍ Skagamenn enduðu sigurgöngu Valsmanna í Lengjubikarnum Þórsarar semja við Ganverja til þriggja ára Verðlaunaðir fyrir þættina Lengsta undirbúningstímabil í heimi Sagður á leið í Víkina Tvö mörk í blálokin færðu Víkingum fyrsta titil ársins Bikar undir í gulri viðvörun Óvíst hvenær en Ægir Jarl mun ganga til liðs við Fram Úrslitaleikur Reykjavíkurmóts karla á miðvikudagskvöld Matthías Daði skoraði þrennu gegn Völsungi Þórdís gerði gömlu félögunum grikk og endurkoma hjá Þrótturum Valsarar skoruðu fjögur og Njarðvíkingar enn ósigraðir Stjarnan á toppinn með sigurmarki Samúels Kára Íslensk félög greiddu yfir fimm milljónir í sektir Arnar og Bjarki fengu gullmerki ÍA á sama tíma Jasmín á gamlar slóðir yngri bróður síns Sjá meira