Mourinho segir Mkhitaryan vera á hraðri niðurleið Arnar Geir Halldórsson skrifar 25. nóvember 2017 11:15 Er Móri búinn að gefast upp á Mkhitaryan? vísir/getty
Jose Mourinho, stjóri Manchester United, gagnrýnir Henrikh Mkhitaryan nokkuð harkalega og segir frammistöðu Armenans vera á hraðri niðurleið. Mkhitaryan hefur ekki verið í leikmannahópi Man Utd í síðustu tveimur leikjum en hann er í hópnum í dag þegar liðið fær Brighton í heimsókn. „Ég hef ekki verið ánægður með frammistöðuna hans. Ég er ekki að tala um einn eða tvo leiki, heldur fjóra eða fimm leiki.“ „Hann byrjaði tímabilið vel en frammistaða hans, markaskorun, stoðsendingar, hvernig hann sinnir pressunni og nær liðinu með sér sem tía. Allir þessir hlutir hafa verið á niðurleið.“ „Það er ástæðan fyrir því að ég tók hann úr liðinu. Aðrir leikmenn hafa lagt hart að sér til að fá tækifæri og allir þurfa að gera það. Þetta er mjög einfalt,“ segir Mourinho. Hinn 28 ára gamli Mkhitaryan gekk til liðs við Man Utd frá Borussia Dortmund fyrir tæpar 30 milljónir punda árið 2016 og hefur skorað þrettán mörk í 57 leikjum fyrir enska stórveldið en Dortmund ku hafa áhuga á að endurheimta kappann.
Enski boltinn Mest lesið Arnar um agabrot landsliðsmanna: „Mikil vonbrigði fyrir mig persónulega“ Fótbolti Bo Johansson er látinn Fótbolti Lætur Ingu Sæland heyra það: „Óboðlegt og frekar hrokafullt“ Sport Freyr fann sig knúinn til að setja nýja reglu Fótbolti Leynilegt ráðabrugg gæti ógnað endurkjöri Infantino Fótbolti „Íslensk knattspyrna er að kveðja mjög góðan mann“ Fótbolti KR - Njarðvík | Vinna KR-ingar þriðja leikinn í röð? Körfubolti Örlög Elísabetar í höndum fyrrverandi markvarðar Liverpool Fótbolti Lærir í Harvard meðan hann jafnar sig Enski boltinn „Stelpurnar vissu ekki einu sinni af þessu“ Fótbolti Fleiri fréttir Slátrarinn baðst afsökunar en fær sekt Getafe búið að setja sig í samband við Sancho Kennir svindli Manchester City um að hafa verið rekinn Mamdani skaut á Man City Lærir í Harvard meðan hann jafnar sig Oft orðaður við United en kom með skýrt svar Reynir að lægja öldurnar: „Eftir leikinn talaði ég í reiði og pirringi“ Hvað verður um Martinez eftir gagnrýnina? Uppsagnir hjá Arsenal Óljós skilaboð vekja upp spurningar: „Ég er orðlaus“ Lét gamminn geisa og fær að heyra það Nítján ára Frakki þakkaði Lampard fyrir traustið með stórleik Náð að búa til „við á móti öllum“-stemningu Með áskorun fyrir sjóðheitan Andra Lucas „Ótrúleg tenging á milli þeirra“ Tveir leikmenn Arsenal meiddust eftir leik: „Aldrei gerst áður“ Til átaka kom eftir stórleikinn á Anfield Sjáðu mörkin: Sekt City sló leikmenn ekki út af laginu Hvers vegna eru City-menn með banana í stúkunni? Fúll heim af gamla heimavellinum Liverpool - Manchester City 0-3| Hristu kærurnar af sér og unnu stórsigur Segir Barcola ekki í vandræðum Kyssti Bentancur eftir rauða spjaldið Sjáðu sigurmark Guimaraes og markaveislu Chelsea Sjáðu enn eitt markið hjá Andra Lucasi Dramatík á Portman Road Manchester United - Tottenham 1-1 | Tíu menn Tottenham björguðu stigi Henderson í stuði í stórsigri Magnað mark dugði fyrir sigri Kúvending í máli uppljóstarans sem óttast um líf sitt Sjá meira