Innbrotið í Kópavogi: Fannst klént að láta þjófinn fara eftir tannbrotið Kolbeinn Tumi Daðason og Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifa 23. nóvember 2017 07:45 Innbrotsþjófarnir voru yfirheyrðir seinnipartinn í gær eftir að hafa sofið úr sér. Þeir voru í annarlegu ástandi þegar þeir voru handteknir. Mennirnir hafa komið áður við sögu lögreglu. Vísir/Vilhelm
Gunnlaugur Sigurðsson, íbúi í vesturbænum í Kópavogi sem ráðist var á á heimili hans seint á þriðjudagskvöld, ber sig vel. Hann segir að hann hefði getað lent í einhverju miklu verra. Hann segist ekki hafa verið óttasleginn og var mjög yfirvegaður þegar Vísir ræddi við hann í gær. Greint var frá því í gærmorgun að þrír menn hefðu ráðist inn á heimili í Kópavogi laust fyrir miðnætti á þriðjudagskvöld og gengið þar í skrokk á húsráðanda sem ætlaði að stugga við þeim. Við það hefði hann hlotið nokkra áverka, meðal annars misst meðvitund og nokkrar tennur. Vísir ræddi við nokkra nágranna mannsins sem stóð ekki á sama í gær. Nokkrir hafa orðið varir við óspektir í nærliggjandi götum í vesturbænum í Kópavogi. Hins vegar bendir ekkert til annars en að innbrotsþjófarnir hafi farið inn á heimili Gunnlaugs fyrir tilviljun. Þjófurinn á tali við hundinn Gunnlaugur lýsir atburðarásinni í samtali við Vísi og segir að átökin hafi fyrst og fremst verið við einn mannanna sem kom inn á heimili hans. Hinir tveir hafi verið utandyra. Hann varð var við umgang í húsinu en taldi son sinn og kærustu vera á ferðinni. Það hafi hins vegar ekki gengið upp í hans huga. Hann hafi því farið af efri hæðinni niður á jarðhæðina. „Ég sá að þessi maður var inni í húsinu en hann var að tala við heimilishundinn,“ segir Gunnlaugur. „Aðrir voru svo staddir fyrir utan húsið, allavega einn eða tveir og þeir voru svolítið grunsamlegir. Ég vildi vita deili á þeim því ég var ekki viss nema þeir hefðu farið eitthvað um húsið því það stóð þannig á hjá okkur. Ég spurði þennan sem var inni hvað hann væri að gera og hann sagðist bara vera að tala við hundinn. Ég sagði að ég myndi nú stinga upp á því að við kölluðum á lögregluna og hann gæti þá útskýrt fyrir henni að það væri ekkert athugavert við ferðir hans. En þá snöggreiðist hann og brýtur í mér mér eina tönn,“ segir Gunnlaugur. Maðurinn verður að líkindum kærður fyrir stórfellda líkamsárás af því hann sló Gunnlaug með steini.Vísir/Eyþór Hann kveðst við það hafa verið enn ákveðnari í að lögreglan kæmi að málinu. Klént að leyfa þjófnum að fara eftir tannbrotið „Mér fannst mér dálítið klént að láta hann fara fyrst hann var búinn að brjóta úr mér tönn,“ segir hann. Auk þess hafði maðurinn í hótunum við hann sem Gunnlaugur hafi að vísu ekki tekið alvarlega. „Eins og menn gera. Sagðist þekkja menn,“ segir Gunnlaugur. Í framhaldinu náði Gunnlaugur til mannsins og áflog hófust í kjölfarið. Gunlaugur, sem fagnaði 67 ára afmæli á dögunum, segir ansi langt síðan hann flaugst síðast á. „Ég ætlaði nú bara að halda honum þannig að hann róaðist niður og myndi kannski fallast á þetta sjónarmið að lögreglan kæmi,“ segir Gunnlaugur. Hann hafi náð góðu taki á manninum. „En þá vill svo óheppilega til að hann nær að losa aðra höndina, nær taki á oddhvössum steini og getur dúndrað steini í hausinn á mér svo ég vankaðist,“ segir Gunnlaugur. Hann leggur áherslu á að mennirnir þrír hafi ekki allir ráðist á sig en sá sem það gerði hafi vissulega farið offari. Óþarfi að slá með steini „Það var engin ástæða fyrir hann til að berja mig í hausinn með steini. Ég var í versta falli bara að fara að halda honum.“ Gunnlaugur veltir fyrir sér hvort hann hefði átt að nálgast mennina með öðrum hætti. Hann hafi ekki viljað nein læti en þó þurft að ganga úr skugga um hvort þeir hefðu stolið einhverju eða væru jafnvel með þýfi úr nærliggjandi húsum og bílum. „Ég býst við að það hefði nú ekki orðið meira úr þessu nema þetta að hann braut í mér tönnina og þessar grunsemdir mínar um að þeir hefðu kannski stolið einhverju, við áttum nú eftir að fara yfir það,“ segir Gunnlaugur. Velti upp fundi hjá Hjálpræðishernum Hann missti nánast meðvitund þegar maðurinn sló hann í höfuðið með steininum en Gunnlaugi tókst undir lokin að sparka steininum úr höndunum á honum. Þá leystist þetta upp að hans sögn en eiginkona hans og sonur voru þá komin á vettvang og lögreglan á leiðinni. „Maður hefði getað lent í miklu verra, þeir komu ekki með hafnaboltakylfur og rotuðu alla og tæmdu húsið, þetta var ekki svoleiðis. Þetta eru bara ógæfumenn,“ segir Gunnlaugur en mennirnir stálu fartölvu af heimilinu. Áður en þeir mættu óboðnir á heimili Gunnlaugs höfðu þeir áreitt kvenkyns leigubílstjóra og yfirgefið bílinn án þess að greiða fargjaldið. Gunnlaugur velti því upp við lögreglu hvort ekki væri vænlegra til árangurs að láta starfsmenn Hjálpræðishersins ræða við mennina, frekar en að leggja fram kæru. Á myndinni má sjá fyrrum bækistöðvar hersins á Íslandi í Aðalstræti.Vísir/GVA Gunnlaugur segist ekki hafa viljað kæra mennina. Raunar hafi hann, þegar lögreglan spurði hvort hann vildi kæra þá, spurt á móti hvort það væri ekki líklegra til árangurs fyrir þjófana að starfsmenn Hjálpræðishersins ræddu við þá, og koma fyrir þá vitinu. En þar sem lögreglan rannsaki málið sem stórfellda líkamsárás fari það sína leið í kerfinu. Bara tilviljun Það vekur athygli blaðamanns hve rólegur Gunnlaugur er yfir þessu öllu saman. Eflaust er það martröð margra að koma aða ókunnugum mönnum á heimili sínu að næturlagi. Svar Gunnlaugs við þeim vangaveltum er yfirvegað eins og öll önnur svör. „Ég veit ekkert um þessa menn og það virðist vera tilviljun að þeir ráfuðu inn í húsið mitt. Það er bara einhvern veginn þannig að mér hefur aldrei fundist mér vera raunverulega ógnað og ég var ekkert óttasleginn við þetta. Þetta var bara tilviljun,“ segir Gunnlaugur sem fór á fund tannlæknis strax í gær vegna tannbrotsins. Framundan hjá Gunnlaugi í dag er svo kennsla samkvæmt áætlun við Háskóla Íslands.
Kópavogur Lögreglumál Tengdar fréttir Brotist inn til foreldra Höskuldar: Kom upp reiði sem ég hef aldrei kynnst áður Fjölskylda Höskuldar Gunnlaugssonar lenti í óskemmtilegri lífsreynslu á dögunum. 23. nóvember 2017 11:15 Innbrotsþjófar réðust á húsráðanda í Kópavogi Þrír menn réðust á húsráðanda á sjötugsaldri í Melgerði. 22. nóvember 2017 06:49 Missti meðvitund og tennur eftir hrottalega árás innbrotsþjófa í Kópavogi Karlmaður á sjötugsaldri missti tennur og er blár og marinn eftir að innbrotsþjófar gengu í skrokk á honum. 22. nóvember 2017 11:57 Mest lesið Ekki boðlegt að þingið hunsi þjóðaratkvæðagreiðslu Innlent Segir dulda skattahækkun taka gildi á næsta ári Innlent Þriðji KFC-morðinginn fundinn rúmlega fjörutíu árum síðar Erlent Mesti snjór í New York í fjögur ár Erlent Í deilum við nágrannann vegna trjáa Erlent Dró konu eftir gangstétt og lyfti henni svo upp með hálstaki Innlent Ferðakostnaður forsetans rúmar tuttugu milljónir Innlent Tilhæfulaus líkamsárás í annað sinn og enginn kom til aðstoðar Innlent Sakamálin sem einkenndu árið sem er á enda Innlent Maðurinn sem var næstur í röðinni hjá mormónum látinn Erlent Fleiri fréttir „Gamla góða Ísland, bara betra“ Gróður farinn að grænka fyrir norðan Ferðakostnaður forsetans rúmar tuttugu milljónir Sakamálin sem einkenndu árið sem er á enda Ekki boðlegt að þingið hunsi þjóðaratkvæðagreiðslu Margfaldur þungi í loftárásum og kyntákn kveður Afbrot, fjölmiðlastyrkir og stefna Miðflokksins Segir dulda skattahækkun taka gildi á næsta ári Líkamsárás í miðbænum Dró konu eftir gangstétt og lyfti henni svo upp með hálstaki Reyndi ítrekað að stofna til slagsmála við skemmtistað Sjálfvirkir lyfjaskammtarar borgi sig tvöfalt til baka Tilhæfulaus líkamsárás í annað sinn og enginn kom til aðstoðar Keyptu aðstoð vegna leiðréttingar landsframlags og hringferðar ráðherra Frumkvæðisvinna lögreglu að loka fjórum afhendingarstöðum „Fara þarf í raunverulegar aðgerðir“ Hrindir af stað söfnun fyrir föður drengsins Kjartan sækist ekki eftir endurráðningu sem bæjarstjóri Landeldi í vexti og lögregla lokar áfengisverslunum Árekstur á Suðurlandsbraut Ekki talinn tengjast aukinni eldvirkni Handteknir grunaðir um framleiðslu fíkniefna Jarðskjálfti við Kleifarvatn Lögreglumenn eltu lausa hesta Lögregla lokaði Smáríkinu og Nýju vínbúðinni Stöðvuðu menn í ofbeldishug við landamærin Piltur skilinn eftir ber að ofan og skólaus eftir hrottafengna árás Dæmdur fyrir líkamsárás í matsalnum Engir ælupokar notaðir, þetta var núllpokaflug Hafði komið sér fyrir á háalofti hótels Sjá meira
Brotist inn til foreldra Höskuldar: Kom upp reiði sem ég hef aldrei kynnst áður Fjölskylda Höskuldar Gunnlaugssonar lenti í óskemmtilegri lífsreynslu á dögunum. 23. nóvember 2017 11:15
Innbrotsþjófar réðust á húsráðanda í Kópavogi Þrír menn réðust á húsráðanda á sjötugsaldri í Melgerði. 22. nóvember 2017 06:49
Missti meðvitund og tennur eftir hrottalega árás innbrotsþjófa í Kópavogi Karlmaður á sjötugsaldri missti tennur og er blár og marinn eftir að innbrotsþjófar gengu í skrokk á honum. 22. nóvember 2017 11:57