Sjaldgæfur þurrkur í vestlægri átt Birgir Olgeirsson skrifar 1. desember 2017 21:19 Spákort Veðurstofu Íslands fyrir morgundaginn. vedur.is
Það verður fremur hvasst á norðanverðu landinu á morgun og sérstaklega hvasst í kringum Öræfi. Meðal vindhraði getur náð 23 – 25 metrum á sekúndu samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofu Íslands og geta hviður náð tvöföldum þeim hraða þegar mest er. Það mun hvessa í kvöld og fram eftir nóttu og mun ekki byrja að lægja fyrr en eftir hádegi á morgun og verður fremur hvasst fram eftir degi. Veðurstofan segir þó að það sé fremur sjaldgæft að spáð sé svo þurri vestlægri átt. Slíkri átt fylgi yfirleitt raki og það af því að kalt loft af Grænlandsjökli blási yfir Grænlandssund. Loftið frá Grænlandsjökli sé yfirleitt mun kaldara en yfirborð sjávar og þá stígi rakinn upp og myndi bólstra sem færa él eða skúrir yfir landið. Nú sé hins vegar loftið sem kemur af Grænlandsjökli fremur milt og sjórinn fremur kaldur og þá myndast sáralítil ef þá nokkur él. Það gæti því létt ágætlega til og orðið býsna fallegt veður á morgun. Skýjahuluspáin sé þurr en hins vegar gefur loftrakaspá fyrir tveggja metra hæð aðra mynd og gæti því orðið létt yfir fram að hádegi á morgun, en þykknar upp eftir hádegi.Veðurhorfur á landinu næstu daga:Á morgun:Dregur smám saman úr vindi á morgun, 8-15 og stöku él annað kvöld, hvassast SA-til. Hiti nálægt frostmarki.Á sunnudag:Vestlæg eða breytileg átt, 3-8 m/s og skýjað með köflum, en þurrt að kalla. Frostlaust við S- og V-ströndina, annars vægt frost. Líkur á smá rigningu eða slyddu SV-lands um kvöldið.Á mánudag:Suðvestlæg átt, 3-10 og rigning eða slydda, en yfirleitt þurrt austantil. Vægt frost NA- og A-lands, en annars 0 til 6 stig, mildast við S-ströndina.Á þriðjudag og miðvikudag:Gengur í norðan 8-15 með snjókomu eða éljum og kólnandi veðri, en léttir til syðra.Á fimmtudag:Lægir smám saman og rofar til, en talsvert kalt í veðri.Á föstudag:Útlit fyrir SV-læga átt með ofankomu, en úrkomulítið N- og A-lands. Hlánar SV-lands en annars frost.
Veður Mest lesið Biður Jón afsökunar Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Erlent Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Erlent Vara við „perragleraugum“ Innlent Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Innlent Bakar til góðs næsta sólarhringinn Innlent Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Innlent Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Innlent Fleiri fréttir Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar „Eigum ekki að bíða eftir alvarlegu atviki“ Jafnlaunavottunin afnumin en starfsfólkinu fækkar ekki Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Varar við að biðraðir í Keflavík geti fækkað flugleiðum Ekki ástæða til að rýma bankann Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað „Ég ætla ekki að fara í nein orðaskipti við Jón“ Sjö ára dómur Nýr forseti ASÍ, umdeildur sýknudómur og snjöll markaðsbrella Sjá meira