Ívar: Fyrsti leikhluti var ekki körfubolti Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 14. desember 2017 21:33 Ívar með sínum mönnum. vísir/eyþór „
Við hertum vörnina aðeins í seinni hálfleik. Vörnin í fyrri hálfleik var skelfileg. Í seinni hálfleik stöðvuðum við [Austin Magnus] Bracey. Emil [Barja] og Hjálmar [Stefánsson] tóku hann út úr leiknum,“ sagði Ívar Ásgrímsson, þjálfari Hauka, aðspurður hvað hefði skilað sigrinum á Val í kvöld. „Við fengum alltof mikið af hraðaupphlaupum á okkur í fyrri hálfleik. Við stoppuðum það og þá varð þetta okkar leikur. Þeir spila hratt og það er mikið skorað. Fyrir leikinn vildum við hægja aðeins á honum en það heppnaðist ekki alveg nógu vel.“ Haukar skoruðu 39 stig í 1. leikhluta og hittu úr öllum skotum sínum inni í teig. Ívar hafði hins vegar engan húmor fyrir háu stigaskori. „Fyrsti leikhluti var eins og borðtennisleikur. Þetta var ekki körfubolti að mínu mati. Við gerðum ekki það sem við ætluðum að gera, að róa leikinn og stjórna hraðanum. En við gerðum betur í seinni hálfleik,“ sagði Ívar. „Ég vil hrósa Valsmönnum. Þeir eru hörkuduglegir, leggja sig fram og eru að gera góða hluti.“ Eftir sigurinn í kvöld er ljóst Haukar verða á toppnum fram á nýja árið þegar keppni í Domino's deildinni hefst aftur. „Við erum í efsta sæti og enn í bikarnum. Við erum gríðarlega sáttir en þurfum að halda okkur á jörðinni. Við erum ekki búnir að vinna neitt ennþá. Mótið er bara hálfnað og við þurfum að halda haus,“ sagði Ívar að endingu.
Dominos-deild karla Tengdar fréttir Umfjöllun: Valur - Haukar 86-101 | Hafnfirðingar á toppnum fram á nýja árið Haukar unnu sinn sjötta leik í röð þegar þeir lögðu Val að velli, 86-101, í Valshöllinni í kvöld. 14. desember 2017 21:30 Mest lesið Þóra grætur í koddann ef Þorsteinn verður áfram með liðið Fótbolti Segir dóttur sína hafa gert mistök með því að velja íslenska landsliðið Fótbolti Mátti ekki kaupa íbúð Babe Ruth Sport „Þetta snýst ekki bara um Sveindísi og Karólínu“ Fótbolti Hneig niður tvisvar á risamóti í golfi Golf Jordan Henderson snýr aftur í ensku úrvalsdeildina Enski boltinn Sjáðu þáttinn um N1 mótið: Sprungnar vindsængur, lukkuljón og Ronaldo hárgreiðsla Fótbolti Danska þjóðin í áfalli: „Verra en okkar versta martröð“ Sport Viðurkenndi sök og má ekki keppa í CrossFit í fjögur ár Sport Dagskráin í dag: Golf og aftur golf Sport Fleiri fréttir Taka einn efnilegasta leikmanninn frá Íslandsmeisturum Hauka Julio de Assis og Luka Gasic í Stjörnuna Birkir Hrafn í NBA akademíunni „Þetta gerist rosa hratt“ Sengun í fantaformi í sumarfríinu Hægt að gista í glæsihúsi Michael Jordan Shai Gilgeous-Alexander og Angel Reese framan á 2K26 Sengun í fantaformi í sumarfríinu Jokic framlengir ekki að sinni Verður fimmti launahæsti íþróttamaður í heimi Fylkir og Valur í formlegt samstarf Mikil blóðtaka fyrir Valsmenn Sjö lið skiptust á sex leikmönnum Tyrese Haliburton missir af öllu næsta tímabili KR semur við ungan bandarískan framherja Hægt að skoða EuroBasket bikarinn og fá áritun hjá strákunum Þórsarar semja við Grikkja og Bandarikjamann Rauða pandan í NBA útskrifuð af sjúkrahúsi Helgi Magg hættir í Körfuboltakvöldi og semur við Grindavík Fær 2,7 milljarða á ári næstu fimm ár fyrir að spila ekki með liðinu Skórnir hennar seldust upp á mínútu Mike Brown sagður vera að taka við New York Knicks Sænsk landsliðskona til Grindavíkur Belgar vörðu Evrópumeistaratitilinn James tekur einn dans enn í það minnsta Körfuboltaspjald með Jordan seldist á 243 milljónir króna Einhenta undrið ekki í NBA Penninn á lofti í Keflavík Stólarnir búnir að semja við „DNA-ið í félaginu“ Tönnin slegin úr henni og var svo bannað að koma aftur inn á völlinn Sjá meira
Umfjöllun: Valur - Haukar 86-101 | Hafnfirðingar á toppnum fram á nýja árið Haukar unnu sinn sjötta leik í röð þegar þeir lögðu Val að velli, 86-101, í Valshöllinni í kvöld. 14. desember 2017 21:30