Jólakremkexið slær í gegn 11. desember 2017 13:00 ,,Við erum að gæla við þá hugmynd að koma með ný tilbrigði af jólakremkexi fyrir hver jól, svona eins og jólabjórinn,“ segir Jóhannes Freyr Baldursson, framleiðslustjóri hjá Frón. MYND/EYÞÓR
KYNNING: Kremkexið sígilda frá Frón, eða Sæmundur eins og margir kalla það, hefur verið framleitt í tugi ára og er enn ein vinsælasta kextegundin sem fyrirtækið framleiðir. Lengi vel hefur kexið verið framleitt með vanillukremi og ljósu kexi, en nýjungar í bragðefnum og nýjar vélar hafa gert starfsmönnum Fróns kleift að fara inn á nýjar brautir með kremkexið segir Jóhannes Freyr Baldursson, framleiðslustjóri hjá Frón. „Við höfum aðeins nýtt okkur þessa möguleika og ætlum okkur stærri hluti í nánustu framtíð. Nýjasta afurðin er jólakremkexið sem slegið hefur í gegn núna fyrir jólin. Við erum að gæla við þá hugmynd að koma með ný tilbrigði af jólakremkexi fyrir hver jól, svona eins og jólabjórinn.“ Nýja jólakremkexið var þróað síðasta sumar að sögn Jóhannesar og er fyrsti árgangur af jólakremkexi Fróns. „Kexskelin sjálf er krydduð með kanil, negul og engifer sem gerir kexið meira jólalegra og spes. Fyrir þann sem smakkar það þá koma jólin örugglega fyrst upp í hugann og í bragðlaukana.“Nýja jólakremkexið inniheldur m.a. kanil, negul og engifer sem gerir kexið enn jólalegra.Á alltaf við Kex frá Frón hefur fylgt kynslóðum Íslendinga og það er nær alls staðar í boði segir Jóhannes. „Íslendingar borða kexið eitt og sér eða dýfa því jafnvel í mjólk, kakó eða kaffi. Kremkexið hefur verið vinsælt á veisluborðum í erfisdrykkjum og á ýmsum samkomum. Jólakremkexið er náttúrulega geðveikt gott með heitu súkkulaði og þeyttum rjóma, ég tala nú ekki um ef góð jólabók er við höndina líka. Svo er hægt að nota jólakremkexið, og reyndar þetta venjulega líka, í alls kyns eftirrétti og góðgæti til að gæða sér á um jólin. Við birtum einmitt hér tvær frábærar uppskriftir frá Eggerti Jónssyni, konditor og bakarameistara hjá ÍSAM, en þar kemur kryddið í jólakremkexinu sterkt inn.“Starfsmenn Fróns við pökkun á kexi.Fyrsta flokks hráefni Jóhannes segir enga töfraformúlu á bak við vinsældir kexins frá Frón undanfarna áratugi. „Í sjálfu sér er það einfaldleikinn og fyrsta flokks hráefni sem notað er í allt kexið okkar. Áður fyrr var ekki mikið úrval af góðgæti með kaffinu, miðað við hvernig það er í dag. Þá var oft fyrsti kostur að kaupa Frónkex og eiga til uppi á hillu eða inni í búri. Kexið geymist vel þar sem það er lítill raki í því og ég held að samansafn af þessum kostum hafi gert Frónkexið svona vinsælt. Einnig má nefna að það hefur tíðkast í gegnum tíðina að litlum börnum, sem eru að taka tennur, er oft rétt mjólkur- eða matarkex til að naga og narta í við kláða og særindum í gómi. Því má segja að Íslendingar hafi byrjað snemma að smakka á Frónkexinu.“Tvær frábærar uppskriftir frá Eggerti Jónssyni, konditor og bakarameistara hjá ÍSAM, en hér kemur kryddið í jólakremkexinu sterkt inn.Nýtt smákökudeig Jólakremkexið, jólasmákökurnar og jóladeigið frá Frón eru fyrirferðarmiklar vörur þessa dagana en einnig var nýtt smákökudeig kynnt til sögunnar fyrir jólin. „Það er selt í kælum búða, er með hvítu súkkulaði og trönuberjum sem okkur finnst hrikalega gott og hefur fengið góðar viðtökur. Ég legg til að allir prófi að taka það með í næstu ferð og baka heima. Síðan er verið þróa ýmsar nýjungar og landinn getur örugglega treyst á sumarkremkex með hækkandi sól.“
Mest lesið Íslenskt Love Island gæti verið tekið upp á Möltu Bíó og sjónvarp Endaði einn í Færeyjum í sögulegri steggjun Lífið Grætti nánast alla í athöfninni Lífið Krýndur tískukóngur fótboltans Tíska og hönnun Michael Byrne er látinn Bíó og sjónvarp Leikarapar selur í 101 Lífið Segir Depp hafa sturlast úr afbrýðissemi Lífið Erna Mist og Þorleifur Örn eignuðust son Lífið Logi fór á skeljarnar við Como-vatn Lífið Söngvari YMCA látinn Tónlist Fleiri fréttir Ný bókunarvél hjá Úrval Útsýn og fjöldi spennandi ferðamöguleika Kokkur ársins grillar tvo rétti sem allir geta leikið eftir Myndaveisla: Fjör í Hafnarfirði um helgina Nýr grillþáttur fer í loftið á þriðjudag Orion tannlæknastofa stækkar og opnar stofu á 5 stjörnu hóteli í miðbæ Búdapest Bylgjulestin mætir á Hjarta Hafnarfjarðar á laugardag Bylgjulestin lét sig ekki vanta í eina af stærstu veislum ársins á Þingvöllum Kallar próteinið gull og segir kreatín leyndan lykil að betri líðan Kerlingarfjöll: Ævintýri á hálendi Íslands Stofnhús með opið hús í Hnjúkamóa í Þorlákshöfn Klassíkin heldur velli en ný bragðævintýri ryðja sér til rúms Bylgjulestin mætir á Þingvelli á laugardag Smáhlutirnir frá JYSK gefa heimilinu nýtt líf Bylgjulestin: Veðurblíða, góðar minningar og sannkölluð hátíðarstemning Bylgjulestin í Fjölskyldu og húsdýragarðinum Glansandi hár er nýi lúxusinn – af hverju eru allir að tala um „Gloss Hair“? Ung húð þarf ekki tíu skrefa húðrútínu Áhugi leshringja svo mikill að Salka stækkar Skandinavíska merkið Ninepine komið til Lín Design Góð tannheilsa styður við betra líf: Kristjana Ben tannlæknir gefur ráð Bylgjulestin: Sólskin og stemning í Grindavík Sumarbókaveisla á Bylgjunni: Kemur alltaf gott samtal út frá bókum Fjarfundaþjónusta Hugarafls er lífsbjörg fyrir fólk Topptjöldum fylgir nýtt frelsi á ferðalögum Bylgjulestin leggur af stað inn í sumarið Endurvekja límmiðaleik Bylgjunnar Celebrating George Michael kemur til Íslands Sjá meira