Húsgagnadagar hafnir í JYSK með allt að 40% afslætti JYSK 7. október 2026 11:11 Í október er boðið upp á allt að 40% afslátt á húsgögnum í verslunum JYSK um landa allt. Björgvin Þór Smárason er verslunarstjóri JYSK á Selfossi. Það er óhætt að segja að mikið hafi breyst í húsgagnaúrvali JYSK á undanförnum árum. Úrvalið hefur stóraukist og í dag má finna þar allt frá sófum og borðstofuborðum yfir í stóla, skenka, sófaborð og sjónvarpsskápa. Í október gefst svo sérstaklega gott tækifæri til að gera breytingar á heimilinu því þá standa húsgagnadagar yfir hjá JYSK með 20–40% afslætti af öllum húsgögnum.
Björgvin Þór Smárason, verslunarstjóri JYSK á Selfossi, segir úrvalið og samspil verðs og gæða vera meðal helstu styrkleika fyrirtækisins. „Við erum mjög stolt af úrvalinu okkar og erum með gríðarlega breitt úrval. Ég myndi segja að við værum með eitt breiðasta húsgagnaúrval landsins og viðskiptavinir okkar þurfa varla að leita annað eftir húsgögnum.“ Allt annað JYSK en fyrir 15 árum Björgvin segir miklar breytingar hafa orðið á JYSK í gegnum árin, bæði hvað varðar úrval og gæði. Verslunin sé í dag allt önnur en margir kunni að muna eftir frá fyrri tíð. „Við erum með mjög gott verðbil og flott verð á vörunum okkar. Við erum ekki dýr verslun en á sama tíma eru gæðin mjög góð. Því má segja með góðri samvisku að JYSK standi fyrir gæði og verð.“ Hann segir samanburð við sambærilegar vörur annars staðar oft koma vel út fyrir JYSK. „Þegar þú berð vörurnar okkar saman við sambærilegar vörur annars staðar sérðu oft mjög svipaðar eða nánast sömu vörur á töluvert lægra verði hjá okkur. Þegar kemur að samspili verðs og gæða tel ég okkur standa mjög vel að vígi.“ Einingasófar njóta mikilla vinsælda Tískustraumar fara ekki fram hjá húsgagnaheiminum og Björgvin segir reglulega koma fram ákveðnar línur eða vörur sem slá sérstaklega í gegn. Undanfarið hafa einingasófar verið áberandi. „Við höfum aukið sófaúrvalið töluvert og það koma alltaf ákveðnar línur sem verða vinsælli en aðrar. Við erum til dæmis með Osló, Narvik og Esbjerg línurnar og einnig ýmsa einingasófa þar sem hægt er að púsla saman einingum eftir þörfum. Þar má helst nefna vörumerkin Skibby, Skejby og Lyby.“ Því má segja með góðri samvisku að JYSK standi fyrir gæði og verð. Þannig getur fólk byrjað með eina eða tvær einingar og byggt sófann áfram upp í stóran hornsófa eða tungusófa eftir því sem hentar heimilinu og rýminu. Nýjungarnar einskorðast þó alls ekki við sófana. Ný borðstofuborð, borðstofustólar og sófaborð hafa einnig bæst við og segir Björgvin stöðugt vera verið að endurnýja úrvalið. Breiddin sé enda mikil. Sem dæmi nefnir hann að JYSK bjóði upp á rúmlega 100 tegundir af borðstofustólum auk fjölbreytts úrvals af borðstofuborðum, sófaborðum, svefnsófum, skenkjum og öðrum húsgögnum. Húsgagnadagar í október Október er sérstaklega spennandi mánuður fyrir þá sem eru að velta fyrir sér breytingum á heimilinu. Húsgagnadagar standa yfir hjá JYSK og þá er 20–40% afsláttur af öllum húsgögnum. „Við gerum þetta reglulega og viðskiptavinirnir kunna mjög vel að meta það. Við erum með góð verð, skemmtileg tilboð og mikið úrval af vörum á tilboði.“ Tímasetningin henti mörgum vel enda fari fólk gjarnan að huga að heimilinu þegar líður á haustið og jólin nálgast. „Fólk fer að huga að jólunum og vill gjarnan vera búið að gera breytingar heima hjá sér fyrir þann tíma, til dæmis skipta um sófa, borðstofustóla eða annað. Þá er um að gera að nýta sér tilboðin þegar þau koma.“ Öflugt markaðssvæði á Selfossi JYSK rekur verslanir af mismunandi stærðum hér á landi. Mesta húsgagnaúrvalið er á Smáratorgi, Bíldshöfða og Akureyri. En þótt verslunin á Selfossi sé ekki meðal þeirra stærstu þjónar hún stóru og ört vaxandi markaðssvæði. Björgvin segir uppbyggingu og fólksfjölgun á svæðinu hafa haft jákvæð áhrif á verslunina. „Við erum því að verða mjög stórt og öflugt sveitarfélag og sú þróun hefur hjálpað versluninni okkar að vaxa og þróast í það sem hún er í dag.“ Við erum með góð verð, skemmtileg tilboð og mikið úrval af vörum á tilboði. Þá bætist við mikill fjöldi fólks yfir sumarmánuðina vegna umfangsmikilla sumarhúsabyggða í nágrenni Selfoss. „Það er gríðarleg umferð um svæðið yfir sumartímann og mjög mikið að gera á sumrin, eins og hjá flestum verslunum á Selfossi.“ Skoða heima og prófa svo í verslun Þeir sem vilja undirbúa húsgagnakaupin geta byrjað heima í sófanum. Björgvin segir vef JYSK mikið notaðan, ekki síst á kvöldin eftir að verslunum hefur verið lokað. „Vefurinn okkar er mjög þægilegur og með gott viðmót. Það er auðvelt að rata um hann og finna það sem fólk er að leita að.“ Margir skoði úrvalið fyrst á netinu og komi síðan í verslun með ákveðna vöru í huga til að sjá hana með eigin augum og prófa. Björgvin segir spennandi tíma fram undan hjá JYSK og að viðskiptavinir séu orðnir duglegir að fylgjast með bæði nýjungum og tilboðum. „Við erum mjög stolt af vörunum okkar og úrvalinu. Viðskiptavinirnir eru líka farnir að þekkja ákveðið mynstur hjá okkur, vita hvað er fram undan og fylgjast með tilboðum og nýjungum. Úrvalið okkar er einfaldlega mjög gott og mikið.“
Hús og heimili Mest lesið Úlfurinn át þá alla Gagnrýni Hálfnakinn steggur handtekinn á Arnarhóli Lífið Hvað veistu um… pitsur? Lífið Tóku í gegn fjögur hundruð fermetra einbýli í Hafnarfirði Lífið Hætta við að hætta við að hætta við Tónlist Hilmir Snær svarar gagnrýnendum Menning Ómetanlegt fyrir samkynhneigðan strák í skápnum Bíó og sjónvarp Sturluð skvísulæti í stórafmæli Tíska og hönnun Sjálfið okkar: Hvers vegna kaupum við nammi við kassann síðdegis? Áskorun Noah Wyle sá kynþokkafyllsti í heimi Lífið Fleiri fréttir Hræðilegir dagar í Partylandi Miðbær Nashville kemur til Reykjavíkur og Akureyrar Prótein á að vera í forgangi Af hverju haldast ekki liðir & krullur í hárinu? Fjarstætt að hugsa til þess að þetta myndi enda svona Haribo-kastalar og hrekkjavökugleði í Bónus Ég er full af lífsþrótti og vil eiga fullt af árum í viðbót Ef ég hefði komið einu til tveimur árum seinna hefðum við ekki verið að eiga sama samtal Nýja Garmin Fenix 9 sameinar allt það besta í einu úri Ég vissi sjálf að það var ekki í lagi Ég upplifði mjög sterkt að ég væri að bregðast Ef þú finnur fyrir einkennum, hlustaðu á líkamann Árlega greinast 2.146 einstaklingar: Svona nýtist þinn stuðningur Útilegumaðurinn býður nú meira en ferðavagna og útivistarbúnað Boney M og Herbert Guðmundsson stíga saman á svið á öðruvísi jólatónleikum Svansvottaðar gæðaíbúðir þar sem hugsað er fyrir hverju smáatriði Er bíllinn klár fyrir veturinn? Kíktu á vetrartékklista Bílanausts Nathan fagnaði tímamótum með stærsta viðburði í sögu félagsins Tryggðu þér nýtt rafhjól fyrir 2027 á hagstæðari kjörum Rafha fagnar 90 árum með pönnukökum, afmælistilboðum og fjöri Smáralind breytist í tímavél um helgina Tennis, tónlist og samfélag: Happdrætti Blindrafélagsins skiptir máli Siglingar, safarí og suðrænar strendur meðal spennandi sérferða Húsgagnadagar hafnir í JYSK með allt að 40% afslætti Svona getur lyfjaskammtarinn einfaldað daglegt líf Sprenging í sölu saltvatnspotta á Íslandi Kona fagnar tólf árum í nýjum og glæsilegum Firði Mæðgurnar á bak við Kalkliti mæta í Skútuvog Húðin breytist með aldrinum: Hagkaup leggur aukna áherslu á fræðslu „Það er sannarlega óþarfi að mygla inni“ Sjá meira