Hútar skutu eldflaugum á Sádi-Arabíu Þórgnýr Einar Albertsson skrifar 20. desember 2017 06:00 Hart hefur verið barist í Jemen undanfarin tvö ár. vísir/epa
Hernaðarbandalagið sem Sádi-Arabar eru í forsvari fyrir gegn Hútum, uppreisnarmönnum í Jemen, skaut niður eldflaug sem stefndi á Riyadh, höfuðborg Sádi-Arabíu, í gær. Frá þessu greindu ríkismiðlar þar í landi. Engan sakaði en sjá mátti fjölda mynda af reykjarmekkinum á samfélagsmiðlum. Eldflaugin stefndi á fund sádiarabískra leiðtoga í al-Yamama-höll, að því er sjónvarpsstöð Húta, al-Masirah TV, greindi frá. Á meðal þeirra sem sóttu fundinn var krónprinsinn Mohammed bin Salman en í al-Yamama eru skrifstofur konungsfjölskyldunnar. Um var að ræða eldflaug af gerðinni Burkan-2 og sagði sjónvarpsstöðin frá því að skotið væri „svar við svívirðilegum glæpum sem Bandaríkjamenn og Sádi-Arabar hafa framið í Jemen“. Talsmaður ríkisstjórnar Sádi-Arabíu sagði eftir árásina að hún sannaði áframhaldandi stuðning íranskra stjórnvalda við Húta. Sá stuðningur bryti gegn samþykktum öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna og ógnaði stöðugleika og friði á svæðinu. Íranar og Sádi-Arabar eiga í eins konar köldu stríði. Borgarastyrjöldin í Jemen er talin leppstríð þar sem Sádi-Arabar og bandamenn þeirra berjast við Húta sem njóta stuðnings íranskra stjórnvalda. Íranar hafa þó neitað því að þeir sjái Hútum fyrir vopnum. Aðgerðir hernaðarbandalagsins gegn vopnasmygli til Jemens voru hertar eftir svipað eldflaugaskot þann 4. nóvember síðastliðinn. Sameinuðu þjóðirnar hafa þó varað við aðgerðunum þar sem þær hamla matvælaflutningum til landsins. Jemen er nefnilega á barmi hungursneyðar sem gæti orðið sú mesta og alvarlegasta í heiminum í áratugaraðir. Að minnsta kosti 8.670 hafa látið lífið frá því borgarastyrjöldin hófst árið 2015 og 49.960 hafa særst samkvæmt SÞ.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent Ætla að rífa umdeilda kaffiskúrinn við Leifsstöð Innlent Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Erlent Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku Innlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Hefja leit að Lúðvík í fyrramálið Innlent Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin Erlent Deila um sóttkví fer alla leið Innlent Fleiri fréttir Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Sjá meira