Sluppu út úr fangelsi vopnaðir slípirokk og hamri Tryggvi Páll Tryggvason skrifar 3. janúar 2018 13:41 Strokutilraun fanganna náðist á myndband. Vísir/EPA
Níu fangar hafa sloppið út úr Plötzensee-fangelsinu í Berlín á undanförnum dögum. Sex fangar ganga enn lausir en fjórir þeirra sluppu úr fangelsinu með því að brjótast út í gegnum loftræstingakerfi fangelsins. BBC greinir frá. Fjórmenningarnir sluppu út síðastliðinn föstudag. Brutu þeir sér leið inn í loftræstikerfið vopnaðir slípirokk og hamri úr smíðastofu fangelsins. Þaðað fundu þeir sér leið út úr fangelsinu áður en þeir skriðu undir öryggisgirðingu. Tveggja þeirra er enn leitað Athæfi fanganna náðist á öryggismyndavélar en samt sem áður leið 41 mínúta þangað til upp komst um strokufangana. Á nýársdag sluppu tveir fangar út úr fangelsinu út um glugga á fangaklefa, einn þeirra sneri hins vegar aftur en hins er enn leitað. Þá er ekki vitað hvort að tveir aðrir fangar hafi strokið eða ekki skilað sér eftir dagsleyfi auk þess sem að samfangi þeirra sneri ekki aftur eftir slíkt leyfi. Yfirmaður fangelsismála í Berlín hefur verið harðlega gagnrýndur vegna málsins en hann segir að stofnuð veðri sérstök nefnd til þess að koma auga á og lagfæra veikleika í fangelsum borgarinnar, svo koma megi í veg fyrir að fangar strjúki jafn auðveldlega og raun ber vitni undanfarna daga. Öryggisráðstafanir í Plötzensee-fangelsinu eru ekki jafn miklar og í öðrum fangelsum og geta fangar fengið dagsleyfi, með því skilyrði að þeir skili sér aftur í fangelsið.
Mest lesið Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar Innlent Gefur meirihlutanum falleinkunn Innlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent „Ljóst að þetta snýst um rekstur borgarinnar“ Innlent Markmið að kanna aðstæður en ekki björgun Innlent Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Innlent „Von okkar er að lík Lúlla finnist og við getum jarðað hann“ Innlent „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Innlent Fjörutíu föngum fylgt úr landi fyrstu níu mánuði ársins Innlent Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Erlent Fleiri fréttir Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Sjá meira