Krítíkerar Kastljóssins kjöldregnir á Facebooksíðu Illuga Jakob Bjarnar skrifar 3. janúar 2018 10:26 Bryndís og Snæbjörn reyndust ekki ánægð með Hafið, leikurum og öðrum menningarvinum til mikillar furðu.
Leikhúskrítík Kastljóssins féll heldur betur í grýttan jarðveg meðal leikara Þjóðleikhússins. Bryndís Loftsdóttir og Snæbjörn Brynjarsson ásamt Bergsteini Sigurðssyni menningarritstjóra Ríkissjónvarpsins fjölluðu um Hafið, jólasýningu Þjóðleikhússins, í Kastljósinu í gærkvöldi. Þeim þótti lítt til sýningarinnar koma og ljóst að umsögn þeirra féll ekki í kramið meðal leikara hússins og ýmissa annarra menningarinnar vina, nema síður sé. Illugi Jökulsson rithöfundur og fjölmiðlamaður var ekki kátur með krítíkina, en kona hans Guðrún S. Gísladóttir fer með hlutverk í sýningunni sem er leikstýrt af Sigurði Sigurjónssyni. „Furðulegt spjall um Hafið í sjónvarpinu áðan. Auðvitað er öllum heimilt að hafa hvaða skoðun sem menn vilja á leikritum og uppsetningum en að tala fyrst um hvað leikritið sé voða gott og dramatískt en masa síðan um hvað persónurnar séu einfeldningslegar, söguþráðurinn billegur og átökin einskis verð - það er frekar skrýtið. Og klykkja svo út með yfirlæti um hvað manni þyki vænt um höfundinn,“ skrifar Illugi á Facebooksíðu sina.Algerlega með ólíkindumBaldur Trausti Hreinsson, sem leikur í sýningunni, tekur undir með Illuga. Hann er reyndar furðu lostinn: „Alveg makalaust ég náði þessu bara ekki.“ Og Guðrún telur ljóst hvað þarna hangir á spýtunni: „Bryndis sjálfstæðiskona vill ekki að sullað sé í sjónum hennar,og hinn bara elti.“ Pálmi Gestsson leikari leggur orð í belg og gefur ekki mikið fyrir vitsmuni gagnrýnenda: „Þetta fannst mér með ólíkindum. Það sem ég þó hjó mest eftir þegar gagnrýnandinn sagði (amk svona efnislega) með hálfgerðri vantrú og hnussi að þetta væri gott fyrir þá sem tryðu því að einhverjir efnamenn (kvótakóngar) hefðu framtíð heils byggðarlag í hendi sér! Ef henni finnst það ótrúverðugt veit hún ekki mikið, hvorki um kvótakerfið né landsbyggðina svo mikið er víst. Já mér fannst þetta skrýtið spjall.“Hvað er í gangi? Og þannig er andinn á síðu Illuga, hvar fólk furðar sig á þessari gagnrýni sem Illugi telur reyndar langt fyrir neðan virðingu Ríkisútvarpsins. „Ég bið afsökunar, en hverslags umræður voru þetta um leiksýninguna “Hafið” á RÚV áðan?Átti þetta að vera leikdómur um Hafið? Eða var þetta einhverskonar síðbúið útvarpsskaup í beinni útsendingu. Hvað var í gangi?“ spyr leikkonan Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir.Bergsteinn getur ekki tjáð sigOg Ómar Ragnarsson fjölmiðlamaður með meiru vill taka undir það sem fram kemur á síðu Illuga: „Hvað eftir annað var sagt að „eitthvað vantaði“ en ekkert sagt hvað það var. Það var bara eitthvað að. Í minni sveit var slíkt kallað nöldur. En, svo er annað, Pálmi, sá þig fara á kostum á Hringbraut sem jafn ólíkir menn og Jón Sigurðsson, Einar Ben og Laxness og gapti yfir frammistöðu þinni!“ Vísir leitaði viðbragða Bergsteins Sigurðssonar, hvort hann væri ekki örugglega búinn að reka þau Bryndísi og Snæbjörn? En, Bergsteinn hefur takmarkaðan húmor fyrir svo gráu gríni og færðist undan því að tjá sig um málið. Sagðist ekki geta það; stundum væru gagnrýnendur ánægðir með sýningar, stundum síður ánægðir. Og viðbrögðin eru eftir því, eins og gengur.Lofsamlegir dómarHvort sem það eru viðbrögð við þessum leikdómi Kastljóssins eður liður í eðlilegri markaðssetningu hefur Þjóðleikhúsið nú í morgun vakið athygli á því á póstlista sínum að Hafið hafi fengið góðar viðtökur meðal gagnrýnenda, þá annarra en Bryndísar og Snæbjörns: „Hafið frumsýnt á Stóra sviðinu. Frábærar viðtökur! Hafið eftir Ólaf Hauk Símonarson var frumsýnt á Stóra sviðinu á annan dag jóla. ⭐⭐⭐⭐ „...okkar bestu leikrit standast tímans tönn.“ S.J. Fbl.. ⭐⭐⭐⭐⭐ „...til hamingju með þetta afrek. Þessi sýning á erindi og nýtur vonandi langra lífdaga.“ B.S.- dv.is
Tengdar fréttir Öldurót kynslóðanna Íslensk nýklassík framreidd á hefðbundinn en heillandi máta. 29. desember 2017 11:00 Mest lesið Er Skúli Mog að selja túristum niðurgreitt kornsíróp? Lífið Anne Carson hlýtur bókmenntaverðlaun Nóbels Menning Óþekkti sonurinn leitaði Herbert uppi Lífið „Það er smá töffari í mér“ Tíska og hönnun Ung og upprennandi: „Pabbi segir mér alveg að hætta þessu“ Lífið Douglas gengst við enn einu framhjáhaldinu Bíó og sjónvarp Fangelsi undir Vatnajökli Leikjavísir Simmi og Auddi mættust aftur á skjánum Lífið Minntist pabba síns Johns Snorra: „Að sjálfsögðu hringdi ég í pabba!“ Lífið Húsgagnadagar hafnir í JYSK með allt að 40% afslætti Lífið samstarf Fleiri fréttir Eiginmennirnir fá „ahhsonna aðeins“ útreið Anne Carson hlýtur bókmenntaverðlaun Nóbels Bein útsending: Hver hlýtur bókmenntaverðlaun Nóbels? Lækna-Tómas og Ármann skemmtu sér á safninu Sex hundruð sungu fyrir Brynhildi Málverk af Danakonungi vekur athygli Þura Stína nýr stjórnandi HönnunarMars Skvísur í svakalegu stuði á Svikasögum Frægir í fjöri yfir framtíðinni Varkár Magga Bjarna fyllti Tjarnarbíó Kanónur komu saman í Hveragerði Eva Rún og Blær hljóta Barnabókaverðlaun Guðrúnar Helgadóttur Íslenskar Simpsons-þýðingar í bók: Teygju-túli ekki á færi gervigreindarinnar Skúli Tómas, Herbert og Ragnar í hörkustuði á Kjarval „Maður skynjaði eitthvað brothætt en það var hluti af sjarmanum“ Sjá meira
Öldurót kynslóðanna Íslensk nýklassík framreidd á hefðbundinn en heillandi máta. 29. desember 2017 11:00