Lokuðu Súðavíkurhlíð vegna snjóflóðahættu Stefán Ó. Jónsson skrifar 16. janúar 2018 06:21 Vísir/Stefán
Veginum um Súðavíkurhlíð var lokað núna klukkan 6 í morgun vegna snjóflóðahættu. Veðurstofan áætlar að mikil hætta sé á snjóflóðum á norðanverðum Vestfjörðum en þar gæti orðið mjög hvasst þegar líður á daginn, jafnvel stormur. Gular viðvaranir eru í gildi fyrir Faxaflóa, Breiðafjörð, Vestfirði, Strandir, Norðurland vestra og Norðurland eystra.Á vef Veðurstofunnar segir að um og fyrir helgina hafi verið hlýtt á norðanverðum Vestfjörðum og snjóþekjan hlýnað og blotnað víða. Síðan þá hefur kólnað og bætt á snjó „sem búast má við að geti orðið óstöðugur vegna hitastigulsummyndunar,“ eins og það er orðað. Þá hafi snjóflóð fallið aðfaranótt mánudags. Spáð er áframhaldandi snjókomu og skafrenningi á svæðinu í dag. Taldi Vegagerðin því að réttast væri að loka veginum um Súðavíkurhlíð nú í morgunsárið. Það mun þó draga úr úrkomu og vindi á norðvesturhorninu í kvöld og verður hægari vindur og úrkomulítið á Suðaustur- og Suðurlandi í dag. Gert er ráð fyrir 10 til 18 m/s og snjókomu á Vestfjörðum á morgun en mun hægari vindi annars staðar og verður bjart á köflum. Þó gæti sums staðar verið él við ströndina. Frostið verður á bilinu 2 til 12 stig, kaldast í innsveitum.Gular viðvaranir eru í gildi fyrir norðvesturhorniðVeðurstofanVeðurhorfur á landinu næstu dagaÁ miðvikudag:Norðaustan 8-15 og snjókoma eða él á Vestfjörðum. Hægur vindur annars staðar, úrkomulítið og bjart veður. Frost 2 til 12 stig, kaldast í innsveitum.Á fimmtudag:Norðaustan 5-13 m/s og él, einkum NV-til, en léttskýjað á SV-verðu landinu. Áfram kalt í veðri.Á föstudag:Norðan 8-13 og snjókoma eða él um landið norðanvert, en þurrt og bjart veður S-til. Frost 0 til 8 stig.Á laugardag:Vaxandi austanátt S- og V-lands, þykknar upp og fer að snjóa um kvöldið. Hægari vindur á N- og A-landi og dálítil él við ströndina. Frost 0 til 12 stig, kaldast í innsveitum N-lands.Á sunnudag:Austanátt og slydda eða snjókoma með köflum, hiti kringum frostmark.Á mánudag:Austlæg átt og snjókoma við N-ströndina, annars úrkomulítið.
Veður Mest lesið Biður Jón afsökunar Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Erlent Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Erlent Vara við „perragleraugum“ Innlent Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Innlent Bakar til góðs næsta sólarhringinn Innlent Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Innlent Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Innlent Fleiri fréttir Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar „Eigum ekki að bíða eftir alvarlegu atviki“ Jafnlaunavottunin afnumin en starfsfólkinu fækkar ekki Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Varar við að biðraðir í Keflavík geti fækkað flugleiðum Ekki ástæða til að rýma bankann Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað „Ég ætla ekki að fara í nein orðaskipti við Jón“ Sjö ára dómur Nýr forseti ASÍ, umdeildur sýknudómur og snjöll markaðsbrella Sjá meira