Fráleitt að flóttamaður verði forseti Katalóníu Þórgnýr Einar Albertsson skrifar 16. janúar 2018 07:00 Forsætisráðherrann er ekki par hrifinn af Puigdemont. Nordicphotos/AFP
Carles Puigdemont, fyrrverandi forseti héraðsstjórnar Katalóníu, má ekki verða forseti héraðsins aftur nú, eftir að aðskilnaðarsinnar héldu meirihluta sínum í héraðsþingkosningum í desember. Mariano Rajoy, forsætisráðherra Spánar, sagði í gær að ef hann yrði útnefndur héraðsforseti myndu Spánverjar halda áfram að fara með stjórnina í héraðinu. Spánverjar hafa stýrt Katalóníu frá því síðasta haust þegar héraðið var svipt sjálfsstjórn eftir sjálfstæðisyfirlýsingu þess. Sjálfur er Puigdemont í útlegð í Brussel en ráðherrar héraðsstjórnar hans hafa verið ákærðir fyrir uppreisn. Katalónska héraðsþingið velur sér forseta á næstu vikum og hefur Puigdemont þótt einna líklegastur til að verða fyrir valinu. Jafnvel þótt hann þyrfti að stýra frá Brussel. Óljóst er hvort yfirlýsing Rajoy muni koma til með að setja strik í reikninginn. „Það er algjörlega fráleitt að einhver vilji vera forseti héraðsstjórnar Katalóníu þegar viðkomandi er flóttamaður í Brussel. Þetta er bara spurning um almenna skynsemi,“ sagði Rajoy í ræðu sinni sem haldin var í höfuðstöðvum Þjóðarflokksins í Madrid. Þá sagði Rajoy enn fremur að ef Puigdemont reyndi að vera viðstaddur þingfund í gegnum Skype eða sambærilegt forrit myndu spænsk yfirvöld kæra það til dómstóla.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku Innlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin Erlent Ætla að rífa umdeilda kaffiskúrinn við Leifsstöð Innlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Hefja leit að Lúðvík í fyrramálið Innlent Deila um sóttkví fer alla leið Innlent Fundu auðgað úran í dánarbúi Erlent Fleiri fréttir Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga Sjá meira