Stjörnumenn að safna sóknarlínu Ólafsvíkinga | Guðmundur Steinn í Stjörnuna Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 12. janúar 2018 14:00 Guðmundur Steinn Hafsteinsson er nýr leikmaður Stjörnunnar. Mynd/Fésbókarsíða Stjörnunnar
Framherjinn Guðmundur Steinn Hafsteinsson mun spila áfram í Pepsi-deildinni næsta sumar en hann hefur yfirgefið Víking úr Ólafsvík og samið við Stjörnuna. Stjörnunmenn segja frá því á fésbókarsíðu sinni að Guðmundur Steinn Hafsteinsson hafi skrifað undir tveggja ára samning við Garðabæjarliðið. Það er straumur úr Ólafsvík í Garðabæinn í vetur og það er eins og Stjörnumenn séu hreinlega að safna sóknarlínu Ólafsvíkinga. Ólafsvíkingar féllu úr Pepsi-deildinni á síðustu leiktíð og hafa þegar misst tvo bestu sóknarmenn sína í Garðabæinn. Áður hafði Þorsteinn Már Ragnarsson samið við Stjörnuna. Þessir tveir báru fyrirliðabandið í 22 leikjum Víkinga í Pepsi-deildinni 2017, Guðmundur Steinn var fyrirliði í 16 leikjum en Þorsteinn Már í 6 leikjum. Guðmundur Steinn er markahæsti leikmaður Víkings Ólafsvíkur í efstu deild en hann deilir því sæti með Hrvoje Tokic sem Ólafsvíkingar misstu til Breiðabliks fyrir síðasta tímabil. Guðmundur Steinn, sem er 28 ára, stór og stæðilegur framherji, er uppalinn í Val en hann hefur einnig leikið með HK, Fram og ÍBV á ferlinum auk þess sem hann var hjá Notodden í Noregi 2015 og hluta sumars 2016. Guðmundur Steinn hefur skorað 21 mark í 93 leikjum í úrvalsdeild karla þar af 9 mörk í 37 Pepsi-deildar leikjum með Víkingum. „Guðmundur kemur væntanlega að einhverju leyti til með að fylla skarð Hólmberts Aron Friðjónssonar sem er á leið í atvinnumennsku. Hann er í viðræðum við Íslendingalið Álasunds í Noregi,“ segir í frétt á fésbókarsíðu Stjörnunnar.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Óhuganlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Ronaldo var skilinn eftir heima Fótbolti Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Enski boltinn Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Enski boltinn „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Formúla 1 Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Enski boltinn Gísli kom af fjöllum þegar talið barst að Ljungberg Sport Fjórtán ára drengur gaf sig fram við lögreglu Sport Lést aðeins tveimur árum eftir að hún varð Evrópumeistari Sport Fleiri fréttir Fer frá Stjörnunni í FH Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Sjá meira