Yfirgaf Everton eftir „vúdú-skilaboð“ Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 10. janúar 2018 08:30 Lukaku í leik með United. vísir/getty
Romelu Lukaku ætlaði að skrifa undir nýjan samning við Everton en hætti við á síðustu stundu eftir að hafa fengið vúdú-skilaboð. Þetta fullyrti Farhad Moshiri, einn aðaleiganda Everton á hluthafafundi félagsins í gær.BBC fjallar um málið en fullyrðing Moshiri er vægast sagt áhugaverð. „Hann var með vúdú og fékk þau skilaboð að hann þurfti að ganga í raðir Chelsea,“ sagði Moshiri en sóknarmaðurinn ákvað að lokum að semja við Manchester United, sem keypti hann frá Everton á 75 milljónir punda. Lukaku var nálægt því að ganga frá nýjum samningi við Everton í mars á síðasta ári og staðfesti Mino Raiola, umboðsmaður hans, það á sínum tíma. „Við buðum honum betri samning en hann hefði fengið hjá Chelsea og mætti hann á Finch Farm til að skrifa undir samninginn,“ sagði Moshiri á fundinum í gær. „Robert [Elstone, framkvæmdastjóri] var þarna og það var allt tilbúið. Það voru nokkrir blaðamenn fyrir utan,“ bætti hann við. Lukaku mun þá hafa hringt í móður sína þegar hann greindi svo frá skilaboðunum undarlegu og hætti við allt saman. „Þetta mál snerist ekki um peninga,“ sagði Moshiri. „Svo lengi sem ég verð meirihlutaeigandi í Everton munu fjármál engu máli skipta.“
Enski boltinn Mest lesið Bo Johansson er látinn Fótbolti Lætur Ingu Sæland heyra það: „Óboðlegt og frekar hrokafullt“ Sport Freyr fann sig knúinn til að setja nýja reglu Fótbolti Leynilegt ráðabrugg gæti ógnað endurkjöri Infantino Fótbolti „Íslensk knattspyrna er að kveðja mjög góðan mann“ Fótbolti Örlög Elísabetar í höndum fyrrverandi markvarðar Liverpool Fótbolti Lærir í Harvard meðan hann jafnar sig Enski boltinn „Stelpurnar vissu ekki einu sinni af þessu“ Fótbolti Reynir að lægja öldurnar: „Eftir leikinn talaði ég í reiði og pirringi“ Enski boltinn Flautuþristar og frábær tilþrif: „Hún er eins og jarðýta“ Körfubolti Fleiri fréttir Mamdani skaut á Man City Lærir í Harvard meðan hann jafnar sig Oft orðaður við United en kom með skýrt svar Reynir að lægja öldurnar: „Eftir leikinn talaði ég í reiði og pirringi“ Hvað verður um Martinez eftir gagnrýnina? Uppsagnir hjá Arsenal Óljós skilaboð vekja upp spurningar: „Ég er orðlaus“ Lét gamminn geisa og fær að heyra það Nítján ára Frakki þakkaði Lampard fyrir traustið með stórleik Náð að búa til „við á móti öllum“-stemningu Með áskorun fyrir sjóðheitan Andra Lucas „Ótrúleg tenging á milli þeirra“ Tveir leikmenn Arsenal meiddust eftir leik: „Aldrei gerst áður“ Til átaka kom eftir stórleikinn á Anfield Sjáðu mörkin: Sekt City sló leikmenn ekki út af laginu Hvers vegna eru City-menn með banana í stúkunni? Fúll heim af gamla heimavellinum Liverpool - Manchester City 0-3| Hristu kærurnar af sér og unnu stórsigur Segir Barcola ekki í vandræðum Kyssti Bentancur eftir rauða spjaldið Sjáðu sigurmark Guimaraes og markaveislu Chelsea Sjáðu enn eitt markið hjá Andra Lucasi Dramatík á Portman Road Manchester United - Tottenham 1-1 | Tíu menn Tottenham björguðu stigi Henderson í stuði í stórsigri Magnað mark dugði fyrir sigri Kúvending í máli uppljóstarans sem óttast um líf sitt Áttu í sáttaviðræðum við ensku úrvalsdeildina „Hvernig dirfast þeir að skemma eitthvað sem er hluti af DNA þessa lands“ Gakpo og Isak missa af stórleiknum Sjá meira