Maður sem starfar með börnum hjá Reykjavíkurborg grunaður um kynferðisbrot gegn nokkrum börnum Erla Björg Gunnarsdóttir og Nadine Guðrún Yaghi skrifa 29. janúar 2018 19:00
Karlmaður á fimmtugsaldri sem starfar með börnum og unglingum hjá Reykjavíkurborg hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald í tenglsum við rannsókn lögreglunnar á meintum kynferðisbrotum hans gegn nokkrum börnum. Samkvæmt kæru í málinu leikur grunur á að hann hafi gefið ungum pilti svefnlyf við verknaðinn. Brot mannsins eiga að hafa staðið yfir í tæp sex ár eða frá árinu 2004 til 2010. Eiga þau aðallega að hafa beinst gegn ungum pilti frá því hann var átta ára til fjórtán ára. Brotin eiga að hafa verið framin aðra hverja helgi þegar pilturinn var í umsjá mannsins en maðurinn var fenginn af fjölskyldu piltsins til að aðstoða hann enda hefur hann starfað með börnum og unglingum síðan fyrir aldamót, meðal annars sem stuðningsfulltrúi. Á maðurinn meðal annars að hafa nýtt sér svefnlyf við verknaðinn sem hann gaf piltinum undir því yfirskyni að það væri hóstamixtúra. Þá segir í kærunni að eftir að pilturinn fór að leita sér aðstoðar til að takast á við eftirköst ofbeldisins hafi hann hitt aðra einstaklinga sem voru í umsjá mannsins og hafi svipaða sögu að segja. Sævar Þór Jónsson, réttargæslumaður systkinanna„Gróf kynferðisbrot af verstu sort“ Sævar Þór Jónsson, réttargæslumaður piltsins, segir að grunur leiki á að maðurinn hafi jafnframt brotið gegn systkinum piltsins. Málið hafi tekið gríðarlega á fjölskylduna. „Þetta eru þrjú systkini sem eru innan sömu fjölskyldu og það getur hver sem ímyndað sér aðstæður hjá fólki sem lendir í slíku. Þetta eru alvarleg kynferðisbrot. Mjög alvarleg. Gróf kynferðisbrot af verstu sort,“ segir Sævar Þór og að málið sé grafalvarlegt í ljósi starfa mannsins en hann hefur starfað með börnum og unglingum í um 20 ár. „Það er bent á þennan aðila á sínum tíma og það er auðvitað þannig að þegar fólk leitar aðstoðar telur fólk að aðilar sem taka að sér slíka þjónustu geri það af heilhug og að það sé í raun gert til að hjálpa einstaklingum en ekki skaða þá,“ segir Sævar Þór.Ekki hægt að sinna málinu vegna annríkisÁrni Þór Sigmundsson, yfirmaður kynferðisbrotadeildar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, staðfestir að umrætt mál sé til rannsóknar og að maðurinn hafi verið úrskurðaður í gæsluvarðhald föstudaginn 19. janúar síðastliðinn í þágu rannsóknar þess. Varðhaldið var síðan framlengt um viku síðastliðinn föstudag.Árni Þór Sigmundsson, yfirmaður kynferðisbrotadeildar.Vísir/EyþórÁrni Þór segir málið vera á mjög viðkvæmu stigi og vill ekki staðfesta að maðurinn hafi starfað sem stuðningsfulltrúi drengsins þegar brotin eiga að hafa átt sér stað. Hins vegar sé maðurinn tengdur piltinum. Þá leiki grunur á að maðurinn hafi brotið gegn fleiri börnum. Athygli vekur að kæran barst lögreglunni í lok ágúst á síðasta ári en maðurinn var ekki handtekinn fyrr en í upphafi þessa árs. Allan þennan tíma hefur hann starfað á vistheimili fyrir börn. Aðspurður um ástæðu þessa segir Árni Þór að um sé að ræða gömul brot, málsatvik hafi ekki legið að fullu ljós fyrir og að annríki og málafjöldi hjá lögreglu sé slíkur að ekki hafi verið hægt að sinna málinu sem skyldi. Fjölmörg mál hafi verið til rannsóknar á tímabilinu sem hafi krafist tafarlausrar aðkomu kynferðisbrotadeildarinnar.Starfsfólk vistheimilis í áfalliSkammtímaheimilið sem maðurinn hefur starfað á síðustu ár er rekið af Barnavernd Reykjavíkur. Þar búa unglingar á aldrinum 13-18 ára til skamms tíma vegna erfiðleika heima eða áhættuhegðunar.Um er að ræða viðkvæman hóp unglinga og starf mannsins fólst í að vera til staðar fyrir börnin, sinna þörfum þeirra og reka heimili fyrir þau. Talið er að maðurinn hafi unnið með hundrað og fimmtíu til tvö hundruð börnum á heimilinu.Sigurður Hólm, forstöðumaður heimilisins, fékk fyrst að vita um kæruna í síðustu viku. „Ég er í fyrsta lagi í sjokki. Þetta er maður sem er búinn að vinna hjá mér síðan árið 2010 og mér hefði aldrei dottið í hug að hann myndi gera það sem kemur fram í kærunni. Ég, og við starfsfólkið, erum í sjokki yfir þessu og svo hefur bæst við reiði en aðallega sorg," segir hann.Sigurður Hólm, forstöðumaður hjá Barnavernd ReykjavíkurVar einn á næturvöktum með börnunum Maðurinn var fyrst og fremst á næturvöktum og var þá einn heima með börnunum. Sigurður segir venjuna vera að aðeins einn starfsmaður sé á vakt á nóttunni. „Ég hef lengi verið þeirrar skoðunar að á svona stöðum, þar sem verið er að vinna með fólk sem getur illa varið sig, eigi alltaf að vera að minnsta kosti tveir á vaktinni.“ Samkvæmt upplýsingum frá velferðarsviði hefur sviðið hrundið af stað viðbragðsáætlun vegna málsins. Allir fullorðnir sem hafa dvalið á vistheimilum sem maðurinn hefur starfað á munu fá tilboð um viðtöl í Bjarkarhlíð og forráðamenn þeirra sem eru á barnsaldri munu fá tilboð um viðtöl hjá Barnavernd Reykjavíkur. Tekið er þó fram að engar vísbendingar séu um að maðurinn hafi brotið gegn börnum í gegnum störf sín hjá velferðarsviði Reykjavíkurborgar. Varðandi meint brot hafi maðurinn verið að veita börnum stuðning í greiðaskyni við foreldra þeirra. Sigurður segir að skoða þurfi ferli svona mála. „Það verður að skoða það hvernig svona mál gat beðið í hálft ár þar til það var farið að vinna í því og það uppgötvaðist að maðurinn væri að vinna á stað sem þessum. Það verður að skoða þetta.“
Lögreglumál Mest lesið Sex handteknir og um verulegt magn sterkra efna að ræða Innlent „Ég reikna sterklega með því að karma banki upp á hjá þeim“ Innlent Hafi selt alls konar fíkniefni í gegnum „Kannabis Inc“ Innlent Góðkunningjar lögreglu grunaðir í stóru dópmáli Innlent Tveir handteknu starfsmenn Eimskipa Innlent Segist ekki munu biðja páfa afsökunar Erlent Áfrýja ekki dómi vegna dauða dóttur þeirra Innlent Hyggst banna mánaðarlega hækkun leigu Innlent Unnar kjötvörur af matseðli í skólum: „Stranglega bannað að hafa pylsupartý“ Innlent Vilja verða áheyrnarfulltrúar og hækka laun sín gríðarlega Innlent Fleiri fréttir Tvö erindi borist Þingvallanefnd vegna tónleika Kaleo „Það gerist ekkert ef ljósin eru slökkt“ Ný atvinnustefna vanmeti stærstu tæknibreytingu samtímans Eftirför lögreglu endaði á Sorpu Tveir handteknu starfsmenn Eimskipa Skorað á Guðmund að snúa aftur heim Slagsmál, falsað ökuskírteini og ölvunarakstur Keyrðu utan í bílinn í eftirförinni Endurskoða gjaldsvæði borgarinnar Verulegt magn fíkniefna og hönnunarbolli í vorgjöf Flogið til Vestmannaeyja til mánaðamóta „Þyngra fyrir fæti að fá vinnu“ Hælisleitendamálin settu þrýsting á Reykjanesbæ Vilja verða áheyrnarfulltrúar og hækka laun sín gríðarlega Unnar kjötvörur af matseðli í skólum: „Stranglega bannað að hafa pylsupartý“ Sex handteknir og um verulegt magn sterkra efna að ræða Ekki hægt að taka framboð gilt þó flokkur misskilji reglur Góðkunninginn í vikulangt gæsluvarðhald vegna smygls Kvikuhlaup enn líklegasta sviðsmyndin Áfrýja ekki dómi vegna dauða dóttur þeirra Slökkti í málskotsbeiðni Matvís vegna Flame Sundlaugar opnar lengur um helgar í sumar Hyggst banna mánaðarlega hækkun leigu Ari hlær að gagnrýni á myndbandið Kosningapallborð fréttastofu: Baráttan um Reykjanesbæ Fimm hundruð bleikjur sluppu úr landeldisstöð „Ég reikna sterklega með því að karma banki upp á hjá þeim“ Betur fór en á horfðist við Mývatn: Lenti á þvervegi og tókst á loft Ekkert að frétta af rannsókn þjófnaðarins í Freysnesi Góðkunningjar lögreglu grunaðir í stóru dópmáli Sjá meira