Eina liðið í deildinni sem er betra á útivelli en á heimavelli Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 26. janúar 2018 16:30 Keflvíkingar hafa verið í vandræðum á heimavelli sínum. Vísir/Eyþór
Fimmtánda umferð Domino´s deildar karla í körfubolta lýkur í kvöld þegar Keflvíkingar taka á móti Haukum í TM-höllinni á Sunnubrautinni í Keflavík. Haukarnir hafa tapað síðustu tveimur leikjum sínum (einn í deild og einn í bikar) eftir langa sigurgöngu en heimasækja nú einn „léttasta“ heimavöll landsins samkvæmt tölfræðinni.Leikur Keflavíkur og Hauka verður í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport og hefst útsendingin klukkan 19.45. Keflvíkingar eru á heimavelli í kvöld en TM höllin hefur ekki skilað Keflavíkurliðinu miklu að undanförnu. Keflavíkurliðið hefur nú tapað fjórum heimaleikjum í röð eða öllum leikjum sínum í TM höllinni undanfarna 84 daga. Síðasti heimasigur Keflavíkurliðsins í Domino´s deildinni kom á móti Þór Þorlákshöfn 3. nóvember síðastliðinn. Keflavík vann þann leik með 19 stigum, 98-79. Síðan þá hafa Keflvíkingar tapað á heimavelli á móti Tindastól (88-97), KR (85-012), Stjörnunni (81-92) og Þór Akureyri (98-100). Þetta skelfilega gengi gerir það að verkum að Keflavík er nú eina liðið í Domino´s deild karla sem er með lélegri árangur á heimavelli en á útivelli. Keflavíkurliðið er nefnilega með fjórtán prósent hærra sigurhlutfall á útivelli (prósent) en á heimavelli (prósent). Hér fyrir neðan má sjá hvernig Keflvíkingarnir skera sig úr á þessum lista yfir mismun á árangri liðanna tólf á heima- og útivelli.Munur á árangri á heimavelli og útivelli í Domino´s deild karla: Grindavík +33,9 prósent Þór Þ. +32,1 prósent KR +30,4 prósent Haukar +28,6 prósent Njarðvík +19,6 prósent Valur +17,9 prósent Þór Ak. +16,1 prósent Höttur +12,5 prósent ÍR +10,7 prósent Stjarnan +7,1 prósent Tindastóll +3,6 prósentKeflavík -14,3 prósent
Dominos-deild karla Mest lesið „Pep Guardiola eyðilagði fótboltann“ Enski boltinn Til í að taka skóna af hillunni fyrir Barcelona Fótbolti Dagfarsprúði maðurinn aldrei verið eins reiður Sport Madrídingar á tæpasta vaði Fótbolti Naumur sigur dugði City Enski boltinn Nóg að gera á skrifstofu Stjörnunnar Körfubolti Varalið Villa kreisti út sigur á C-deildarliðinu Enski boltinn Stöðvuðu bardaga Valgerðar Sport Nkunku með þrennu gegn D-deildarliðinu Enski boltinn Davíð Snær skoraði gegn toppliðinu Fótbolti Fleiri fréttir Nóg að gera á skrifstofu Stjörnunnar Shabazz semur við Njarðvík Shaq í Stjörnuna Njarðvíkingar losa sig við Bandaríkjamanninn rétt fyrir mót Þarf ekkert að taka afa bak við hlöðu og skjóta hann Viktor aftur heim í Stjörnuna Clark slegin í augað í frumraun Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Sjá meira