Tobias Thomsen fer frá KR í Val: Við Rúnar náðum ekki samkomulagi Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 30. janúar 2018 10:46 Tobias Thomsen í leik með KR á móti Val. Nú klæðist hann rauðu í sumar. Vísir/Anton
Valsmenn hafa krækt í markahæsta leikmann KR-liðsins á síðustu leiktíð því Tobias Thomsen hefur ákveðið að yfirgefa Vesturbæinn og semja við Íslandsmeistarana. Tobias Thomsen skoraði níu mörk fyrir KR í Pepsi-deildinni á síðustu leiktíð og skoraði tveimur mörkum meira en næsti maður sem var Óskar Örn Hauksson. Auk þess að skora 9 mörk í deildinni þá skoraði Thomsen langmest hjá KR-liðinu samanlagt í deild og bikar eða 13 mörk í 25 leikjum. „Ég átti frábæran tíma hjá KR og var ánægður þar. Ég átti góðar viðræður við Rúnar (Kristinsson) en við náðum ekki samkomulagi,“ sagði Tobias Thomsen í samtali við fótbolta.net. Danski framherjinn er mjög spenntur að koma aftur til Íslands en hann kemur til landsins á morgun og skrifar þá undir Val. Það má líka heyra á Tobias Thomsen að hann sé spenntur fyrir Evrópukeppninni en eins og kunnugt er þá misstu KR-ingar af Evrópukeppninni í fyrsta sinn í áratug. „Um leið og ég kom aftur til Danmerkur eftir tímabilið þá vildi ég fara aftur til Íslands. Ég elska landið og fólkið þar. Fólkið er jarðbundið og tekur þér opnum örmum," sagði Tobias við Fótbolta.net en það má lesa allt viðtalið hér.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Stelpurnar okkar fá ekki leiki vegna sparnaðar Fótbolti Eigandi Nott.Forest ákærður fyrir tengsl við glæpagengi Sport Donald Trump að fá friðarverðlaun frá FIFA? Fótbolti Endurkoma ársins: Á Norðurlandamót aðeins ellefu mánuðum eftir hálsbrot Sport Fylgist spenntur með Viktori: „Þetta er með ólíkindum“ Fótbolti Erfitt að heyra hvað Orri hefur þjáðst Fótbolti „Rokk og ról“ hjá Frey í villta vestrinu Fótbolti Víðir vann „diplómatískan sigur“ á þýska handknattleikssambandinu Handbolti Lamine Yamal sakaði menn um lygar eftir leik Fótbolti Pálmi í ótímabundið leyfi Íslenski boltinn Fleiri fréttir Pálmi í ótímabundið leyfi „Ég og Nik erum ágætis vinir“ Davíð Smári tekur við Njarðvík Jeffs tekur við Breiðabliki Leiðir Breiðabliks og Damir skilja „Við viljum koma Haukum á fótboltakortið“ Fram líka fljótt að finna nýja ást „Í ástarsorg er gott að finna sér nýja ást sem fyrst“ Fanndís hefur ekkert heyrt frá Val og íhugar að hætta „Það verður hundleiðinlegt að spila við Val“ Hermann tekinn við Val Fóru nýja leið í ár og auglýstu eftir þjálfara: Tommy Nielsen ráðinn Pablo og Óskar Örn inn í þjálfarateymi Hauka FH-ingar kveðja Kjartan Henry Tölur úr Bestu: Bjartur Bjarmi fór í flestar tæklingar af öllum Gísli semur við Skagamenn Óskar Smári tekur við Stjörnunni Bretinn ráðinn tæknilegur ráðgjafi hjá Val Fram þvertekur fyrir metnaðarleysi og leitar að nýjum þjálfurum Tölur úr Bestu: Hallgrímur Mar bjó til langflest færi „Mjög sáttur með samninginn“ „Hefði séð eftir því alla ævi“ Magnús Már í viðræðum við HK Uppgjörið: Ísland - Norður-Írland 3-0 | Áfram hluti af elítunni Tölur úr Bestu 2025: Klúðraði langflestum dauðafærum í sumar FH bíður með að tilkynna nýjan þjálfara Óskar Hrafn fer ekki fet Birnir frá Akureyri í Garðabæ Hættir með Fram Heimir kynntur til leiks í Árbænum Sjá meira