Hvítt duft í umslagi á nýjum vinnustað Árna Páls Tryggvi Páll Tryggvason skrifar 9. febrúar 2018 16:36 Frá vettvangi í Brussel Vísir/Getty
Lögregla hefur lokað fyrstu hæð skrifstofu Uppbyggingarsjóðs EES í Brussel eftir að starfsmaður þar opnaði umslag sem innihélt hvítt efni. Sjö Íslendingar starfa fyrir sjóðinn, þar á meðal Árni Páll Árnason, fyrrverandi formaður Samfylkingarinnar sem nýtekinn er við sem varaframkvæmdastjóri. Eftir því sem Vísir kemst næst var umslagið stílað á starfsmann sjóðsins. Inn í umslaginu var annað umslag og í því var hvítt duft. Vegna gruns um að að einhvers konar eiturefni væri í umslaginu var hringt á lögreglu sem brást skjótt við. Sérstakt eiturefnateymi lögreglunnar í Brussel mætti á svæðið og lokaði fyrstu hæð skrifstofunnar af. Samkvæmt heimildum Vísis voru fjórir starfsmenn teknir til skoðunar eftir að hafa komist í tæri við efnið. Enn sem komið er bendir fátt til þess að einhvers konar eiturefni hafi verið í umslaginu en fyllstu varúðar er gætt. Er þetta í annað sinn á nokkrum vikum sem lögregla bregst við tilkynningu um hvítt duft í umslagi. Skrifstofum ráðherra innflytjendamála í ríkisstjórn Belgíu var lokað um tíma eftir að slíkt umslag barst. Ekki reyndist um miltisbrand að ræða í því tilviki. Vel þekkt er að gerðar séu efnaárásir með því að koma miltisbrandi í duftkenndu formi fyrir í umslögum en fimm létust í röð miltisbrandsárása í Bandaríkjunum árið 2001. Taka lögregluyfirvöld því alvarlega ef hvítt duft finnst í umslögum en oftast nær er þó ekki um miltisbrand eða önnur eiturefni að ræða, líkt og árið 2008 er umslag sem innihélt hveiti var sent til bandaríska sendiráðsins á Íslandi.
Tengdar fréttir Árni Páll til EES Árni Páll Árnason, fyrrverandi ráðherra og formaður Samfylkingarinnar, hefur verið ráðinn varaframkvæmdastjóri skrifstofu Uppbyggingarsjóðs EES í Brussel, að tilnefningu íslenskra stjórnvalda. 1. febrúar 2018 06:00 Mest lesið „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Innlent Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Erlent Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Erlent Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Innlent Sama jarmið í sauðfé og ferðamönnum Innlent Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Erlent Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins Innlent Fleiri fréttir Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Sjá meira
Árni Páll til EES Árni Páll Árnason, fyrrverandi ráðherra og formaður Samfylkingarinnar, hefur verið ráðinn varaframkvæmdastjóri skrifstofu Uppbyggingarsjóðs EES í Brussel, að tilnefningu íslenskra stjórnvalda. 1. febrúar 2018 06:00