Rekinn úr landi eftir innsetningu Odinga Þórgnýr Einar Albertsson skrifar 8. febrúar 2018 07:15 Miguna Miguna og Raila Odinga á „innsetningarathöfninni“. Vísir/epa
Ríkisstjórn Uhuru Kenyatta í Keníu vísaði í gær stjórnarandstæðingnum Miguna Miguna úr landi, kom honum upp í flugvél og sendi til Hollands, þaðan til Kanada. Miguna kveðst vera með tvöfaldan ríkisborgararétt, kenískan og kanadískan, en hann var rekinn úr landi fyrir að hafa komið að óopinberri, táknrænni innsetningarathöfn stjórnarandstæðingsins og fyrrverandi forsetaframbjóðandans Raila Odinga á dögunum. Miguna leiðir Mótstöðuhreyfingu kenísku þjóðarinnar, samtök sem ríkisstjórnin lýsti yfir þann 30. janúar að væru skipulögð glæpasamtök. Hann var handtekinn í síðustu viku en þegar mál hans fór fyrst fyrir dóm skipaði dómari yfirvöldum að sleppa Miguna. Það var ekki gert, þess í stað var Miguna aftur dreginn fyrir dóm í smábæ, um sextíu kílómetrum frá höfuðborginni, sakaður um að lýsa því yfir að ætla að fremja lögbrot. Hæstiréttur ríkisins fyrirskipaði svo á þriðjudagskvöld að Miguna yrði sleppt úr haldi og að ákærur á hendur honum yrðu settar á ís þar til lögreglumenn kæmu með hann á ný fyrir dómstól í Naíróbí. Það gerðist ekki og var Miguna sendur úr landi eins og áður segir. „Þessi ólögmæta harðstjórn neyddi mig um borð í flug KLM frá Naíróbí til Amsterdam og þverbraut þannig gegn stjórnarskránni, fimm dómsúrskurðum og almennri skynsemi,“ sagði Miguna í yfirlýsingu í gær. Deilt hefur verið um ríkisborgararétt Miguna enda ólöglegt að reka kenískan ríkisborgara úr landi. Yfirvöld segja Miguna hafa afsalað sér ríkisborgararétti sínum en Miguna segist ekki hafa gert neitt slíkt.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin Erlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Handtekinn fyrir ólöglega dvöl í landinu Innlent „Noregur sökkar“ Erlent Fundu auðgað úran í dánarbúi Erlent Tóku á móti barni í sjúkrabíl Innlent Mismunuðu kvenkyns sérfræðilækni Landspítalans Innlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Fleiri fréttir Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Sjá meira