Fyrirliðarnir snúa heim í Grafarvoginn úr FH Tómas Þór Þórðarson skrifar 7. febrúar 2018 17:00 Bergsveinn Ólafsson og Guðmundur Karl Guðmundsson eru komnir heim. vísir/anton brink/vilhelm
Bergsveinn Ólafsson og Guðmundur Karl Guðmundsson gengu í dag aftur í raðir uppeldisfélags síns Fjölni í Pepsi-deild karla í fótbolta úr FH en þeir voru kynntir til leiks á fréttamannafundi Grafarvogsfélagsins í Egilshöll. Guðmundur Karl gerði tveggja ára samning en Bergsveinn skrifaði undir til þriggja ára. Bergsveinn, sem var fyrirliði Fjölnis áður en hann gekk í raðir FH fyrir tímabilið 2016, á að baki 41 leik fyrir Fjölni í efstu deild. Hann varð meistari með FH á fyrsta ári en átti ekki jafngott tímabil síðasta sumar. Guðmundur Karl tók við fyrirliðabandinu af Bergsveini fyrir sumarið 2016 og var svo fenginn til FH fyrir síðustu leiktíð. Hann kom við sögu í fimmtán leikjum af 22 og náði aldrei að vinna sér inn fast byrjunarliðssæti.Guðmundur Karl og Bergsveinn komnir aftur í gult.ailHann yfirgefur nú FH eftir eitt tímabil í Hafnarfirði en Guðmundur Karl er fjórði leikjahæsti leikmaður Fjölnis í efstu deild frá upphafi með 73 leiki og átta mörk. Báðir eru í miklum metum í Grafarvoginum en Guðmundur Karl, sem verður 27 ára gamall í ár, spilaði sinn fyrsta meistaraflokksleik árið 2008 og kom inn í byrjunarliðið ári síðar. Bergsveinn er ári yngri og spilaði sinn fyrsta leik árið 2010. Hann var orðinn fastamaður í byrjunarliðinu ári síðar en báðir voru lykilmenn í því að koma Fjölni upp í Pepsi-deildina með sigri í Inkasso-deildinni 2013. Fjölnisliðið, sem varð Reykjavíkurmeistari á mánudagskvöldið í fyrsta sinn, var áður búið að fá Almarr Ormarsson frá KA ásamt þeim Arnóri Breka Ásþórssyni frá Aftureldingur og Sigurpáli Melberg Pálssyni frá Fram. Ólafur Páll Snorrason, sem var ráðinn þjálfari Fjölnis síðasta haust, er búinn að losa fimm erlenda leikmenn frá félaginu; Fredrik Michaelsen, Ivica Dzolan, Linus Olsson, Marcus Solberg og Mees Junior Siers.Komnir heim! #FélagiðOkkar pic.twitter.com/i3QDcZU7oo— Fjölnir FC (@Fjolnir_FC) February 7, 2018
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Óhuganlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Ronaldo var skilinn eftir heima Fótbolti Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Enski boltinn Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Enski boltinn „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Formúla 1 Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Enski boltinn Gísli kom af fjöllum þegar talið barst að Ljungberg Sport Fjórtán ára drengur gaf sig fram við lögreglu Sport Lést aðeins tveimur árum eftir að hún varð Evrópumeistari Sport Fleiri fréttir Fer frá Stjörnunni í FH Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Sjá meira