Hlýindi og hávaðarok Kristín Ólafsdóttir skrifar 4. febrúar 2018 09:26 Hiti fer upp í 8 stig á höfuðborgarsvæðinu í dag. Þá má búast við töluverðri rigningu.
Hlý sunnanátt verður á landinu í dag með tilheyrandi rigningu sunnan- og vestantil á landinu og hávaðaroki norðan heiða. Þetta kemur fram í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofu Íslands. Gert er ráð fyrir að vindur nái 18-25 m/s norðantil í dag en 10-18 m/s sunnan heiða og þá er töluvert hlýrra á landinu en undanfarna daga. Með kvöldinu hægist á vindi og kólnar í veðri með slyddu eða snjókomu vestanlands. Ágæt færð er víðast hvar á landinu í dag. Á vef Vegagerðarinnar kemur fram að nú sé að mestu greiðfært á Suður- og Suðvesturlandi. Á Norðurlandi og Vestfjörðum eru þó víða hálkublettir og töluvert hvassviðri. Á morgun, mánudag, er jafnframt búist við hvössum éljum, jafnvel samfelldri snjókomu, og frosti á bilinu 0 til 5 stig. Þá verður þó þurrt á Austurlandi. Á þriðjudag verður áfram kalt í veðri og einhver éljagangur á Vesturlandi en léttskýjað annars staðar á landinu. Þá er spáð hvassviðri eða stormi með snjókomu, slyddu eða rigningu aðfararnótt miðvikudags.Veðurhorfur á landinu næstu daga:Á þriðjudag: Vestan 8-15 m/s og él, en léttskýjað austantil. Dregur úr éljum eftir hádegi. Frost 2 til 15 stig, kaldast í innsveitum NA-lands. Snýst í vaxandi sunnanátt V-til á landinu um kvöldið með hlýnandi veðri.Á miðvikudag: Sunnan hvassviðri eða stormur með talsverðri rigningu eða snjókomu aðfaranótt miðvikudags, en snýst síðan í hægari suðvestanátt með éljum, fyrst vestantil. Kólnar í veðri og léttir til fyrir austan síðdegis.Á fimmtudag: Stíf suðvestanátt og él, en þurrt og bjart á Norðaustur- og Austurlandi. Frost 1 til 12 stig, kaldast NA-til.Á föstudag og laugardag: Útlit fyrir áframhaldandi umhleypingar, sunnan og suðvestanáttir með rigningu eða éljum.
Veður Mest lesið Epstein-skjölin birt Erlent Nemandi réðst á kennara á jólaskemmtun í Ingunnarskóla Innlent Svona á að raða í uppþvottavélina Innlent Enn fleiri myndir úr safni Epsteins: „En hún vill þúsund dali fyrir hverja stúlku“ Erlent Talinn hafa komið til landsins til að stela Innlent Snorkstelpan snýr aftur eftir ágreining um höfundarrétt Innlent Tvær íslenskar konur létust í umferðarslysinu í Suður-Afríku Innlent Halla forseti opnar sig um kynferðisbrot í æsku Innlent Íslendingar í alvarlegu umferðarslysi í Suður-Afríku Innlent Reynslubolti kveður lögregluna Innlent Fleiri fréttir Svona á að raða í uppþvottavélina „Verður vonandi til að styrkja íslensku einkareknu miðlana“ Talinn hafa komið til landsins til að stela Snorkstelpan snýr aftur eftir ágreining um höfundarrétt Framlög til einkarekinna fjölmiðla næstum tvöfaldast Meðferð við spilafíkn loks niðurgreidd af Sjúkratryggingum Kílómetragjaldið bitni helst á sparneytnum eldsneytisbílum Tvær íslenskar konur létust í umferðarslysinu í Suður-Afríku Íslendingar lentu í alvarlegu slysi í Suður-Afríku Stóraukið fjármagn til Frú Ragnheiðar Standi ekki til að leggja niður Rás 2 þrátt fyrir boðaða heimild Bæta hjóla- og göngustíga í Breiðholti, Grafarholti og í Elliðaárdal Birkir vill þriðja til fjórða sæti hjá Samfylkingu Lítið snjóflóð féll á snjótroðara í Hlíðarfjalli Tímamótasamningur Sjúkratrygginga og SÁÁ Hætta á snjóflóðum til fjalla í Eyjafirði Hluti auglýsingatekna Rúv renni til einkarekinna fjölmiðla „Við látum alltaf taka okkur í bakaríið á endanum“ Götulokanir í miðborginni á Þorláksmessu og um áramót Logi kynnti aðgerðir í þágu fjölmiðla Einn handtekinn í aðgerð sérsveitar á Selfossi Bústaðakirkja opnuð vegna slyssins í Suður-Afríku Stormur gæti skollið á landið á aðfangadag Kílómetragjaldið verður að veruleika og hvassviðri um jólin Funduðu í 320 klukkustundir og afgreiddu 37 frumvörp Telja innbrot og umferðarlagabrot mesta vandamálið Katrín orðin stjórnarformaður Hæstiréttur vill ekki hlýða á Kristján Markús Nemandi réðst á kennara á jólaskemmtun í Ingunnarskóla Halla forseti opnar sig um kynferðisbrot í æsku Sjá meira