Fjölmiðlabanni Kenyatta aflétt Þórgnýr Einar Albertsson skrifar 2. febrúar 2018 07:00 Raila Odinga, sem titlar sjálfan sig "forseta fólksins“. vísir/afp
Hæstiréttur Keníu aflétti í gær útsendingarbanni sem ríkisstjórn Uhuru Kenyatta forseta lagði á fréttastöðvarnar KTN, NTV og Citizen TV vegna fyrirhugaðra útsendinga frá táknrænni en óopinberri innsetningarathöfn forsetaframbjóðandans og stjórnarandstæðingsins Raila Odinga. Úrskurður hæstaréttar nær þó einungis til tveggja vikna á meðan málið fer fyrir rétt. Samkvæmt blaðamanni BBC í höfuðborginni Naíróbí bendir ekkert til þess að ríkisstjórnin ætli að framfylgja þessari ákvörðun hæstaréttar og voru miðlarnir ekki í loftinu þegar þessi frétt var skrifuð. Innanríkisráðuneytið sagði í tilkynningu fyrr í vikunni að athöfnin hefði verið tilraun til að grafa undan ríkisstjórninni og að með henni hefðu stjórnarandstæðingar lagt línurnar að byltingu sem gæti dregið þúsundir Keníumanna til dauða. Odinga vildi með athöfninni mótmæla Kenyatta forseta en sá fyrrnefndi sniðgekk forsetakosningar októbermánaðar eftir að hafa tapað fyrir forsetanum í ógildum forsetakosningum ágústmánaðar.
Birtist í Fréttablaðinu Kenía Mest lesið Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin Erlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent Handtekinn fyrir ólöglega dvöl í landinu Innlent „Noregur sökkar“ Erlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Tóku á móti barni í sjúkrabíl Innlent Fundu auðgað úran í dánarbúi Erlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Umferð gæti tafist á Arnarnesvegi Innlent Fleiri fréttir Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé Sjá meira