Hefja herferð gegn Brexit Kjartan Kjartansson skrifar 19. febrúar 2018 18:14 Endurnýjun kynnti herferð sína til að stöðva Brexit í þinginu í dag. Vísir/AFP
Nýr stjórnmálaflokkur í Bretlandi sem stofnaður var í fyrra hleypti af stokkunum herferð til að koma í veg fyrir að Bretar gangi úr Evrópusambandinu í dag. Fyrirmynd flokksins er sögð stjórnmálaflokkur Emmanuels Macron, forseta Frakklands. Endurnýjun [e. Renew] var stofnaður í fyrra skömmu eftir að Macron hafði sigur í frönsku forsetakosningunum með nýstofnuðum Áfram-flokki sínum. Liðsmenn Endurnýjunar ætla að reyna að sannfæra breska þingmenn um að hafna samningi stjórnvalda um að ganga úr sambandinu. Þetta hyggjast þeir gera með því að þrýsta á þingmenn sem eru hlynntir Brexit í kjördæmum þar sem mikill stuðningur er við aðild að ESB, að því er segir í frétt Reuters. „Við ætlum að þrýsta á þingmenn um að hugsa um hagsmuni þjóðarinnar og að setja það að vera um kyrrt aftur á dagskrána í atkvæðagreiðslu um endanlegan samning við Evrópusambandið,“ segir James Torrance, eins forsvarsmanna flokksins. Flokkurinn ætlar einnig að bjóða fram í sveitarstjórnarkosningum í maí og eins ef til þingkosninga kemur. Ríkisstjórn Theresu May forsætisráðherra og Íhaldsflokkur hennar er klofinn í afstöðu sinni til Brexit. May hefur sjálf sagt að Bretland gangi úr sambandinu í lok mars á næsta ári hvað sem tautar og raular. Hún hefur útilokað að önnur þjóðaratkvæðagreiðsla verði haldin um útgönguna.
Brexit Mest lesið „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Innlent Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Erlent „Von okkar er að lík Lúlla finnist og við getum jarðað hann“ Innlent Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Erlent Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Erlent Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Innlent Sama jarmið í sauðfé og ferðamönnum Innlent Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Erlent Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Erlent Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Erlent Fleiri fréttir Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Sjá meira