Ástríðan skiptir meira máli en leikskipulagið Anton Ingi Leifsson skrifar 14. febrúar 2018 06:00 Klopp á blaðamannafundi í vikunni. vísir/getty
Jurgen Klopp, stjóri Liverpool, segir að ástríða og hjarta leikmanna muni skipta meira máli í leiknum mikilvæga gegn Porto í kvöld heldur en leikskipulag hans. Fyrri leikur Porto og Liverpool í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar fer fram í kvöld, en leikið er í Portúgal. Liverpool-liðið leitast eftir góðum úrslitum og Klopp vill sjá hjarta frá sínum mönnum. „Taktík mun aldrei vinna leiki. Þetta snýst um leikmennina og ákvarðanir sem þeir taka og að gera rétt á hverjum tímapunkti. Þeir þurfa leggja hjarta sitt í þetta og skilja allt eftir á vellinum,” sagði Þjóðverjinn litríki. „Taktík er mikilvæg, en bara í þeim tilgangi að koma leikmönnum í þeirra bestu stöður,” sagði Klopp og aðspurður um hvort að einvíginu gæti verið lokið eftir fyrri leikinn á morgun svaraði hann: „Gerist það oft í Meistaradeildinni að einn leikur ráði úrslitum? Ég hef ekki hugsað um það, en ég hef trú á Anfield. Við vitum að það er staður þar sem stuðningsmennirnir geta gert gæfumuninn.” „Til þess að nýta það í síðari leiknum verðum við að sinna okkar skyldum í fyrri leiknum. Við leitumst eftir frábærum úrslitum til þess að við séum á lífi í síðari leiknum, en við vitum að þetta verður erfitt,” sagði kappinn að lokum. Leikur kvöldsins verður að sjálfsögðu sýndur í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport, en upphitun hefst klukkan 19.15. Leikurinn sjálfur hefst 19.45.
Meistaradeild Evrópu Mest lesið Ný rangstöðutækni á HM Fótbolti Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Handbolti Enn eitt sjokkið í París: „Ég vil bara hætta í tennis núna“ Sport Leyfislaus CrossFit-dómari og keppandinn hans í tveggja ára bann Sport Vardy sýnir myndir frá innbrotinu á heimilið Fótbolti Þór Þorlákshöfn sækja sér leikmann Körfubolti „Allar spár kolrangar og vitlausar“ Íslenski boltinn „Það er tilfinningaþrungið að kveðja Old Trafford“ Enski boltinn Manchester United kaupir Ederson Fótbolti Á að endurvekja þungarokksfótboltann og ánægjuna á Anfield Enski boltinn Fleiri fréttir Vill nota Liverpool-strákinn í annarri stöðu en hann er vanur „Það er tilfinningaþrungið að kveðja Old Trafford“ Á að endurvekja þungarokksfótboltann og ánægjuna á Anfield Segir að Real Madrid sé með munnlegt samkomulag við Konaté Rodri ætlar ekki að ræða framtíð sína fyrr en eftir HM Fer frá Fulham og tekur við Benfica Dalglish greindi óvart frá baráttu sinni við krabbamein „Öfundsýki alls staðar“ „Ef þú gerir þetta aftur drepurðu mig“ Hefja formlegar viðræður við Iraola Gripinn í PSG-treyju í skrúðgöngu Arsenal Stóru liðin á eftir Kroupi Óvíst hvort Arsenal-maðurinn geti verið með á HM Keegan með fjórða stigs krabbamein Slot segist skilja Liverpool eftir nákvæmlega þar sem liðið á heima Milner hættur í fótbolta Aðeins framúrskarandi stjóri hefði getað lagað Liverpool Taka gleði sína á ný í meistararútu í London Van Dijk sendi Slot kveðju Arftaki Slot hjá Liverpool fundinn Slot rekinn frá Liverpool Tottenham bætir í vörnina Sjáðu allar bestu stoðsendingar tímabilsins í enska boltanum Vilja ráða Iraola eða Lampard Vann tvo Evróputitla sama vorið Í keppni sem þeim var vísað út úr: „Ævintýri sem átti að enda svona“ Barcelona búið að landa Gordon Ederson nálgast Manchester United Stórlið slást um Gordon Siggi Bond með besta stjörnuliðið en Ragnar hætti snemma Sjá meira