Jóhanni lýst sem hlýjum og einstökum Guðný Hrönn skrifar 13. febrúar 2018 15:30 Jóhann Jóhansson, 19. september 1969 - 9. febrúar 2018. NORDICPHOTOS/GETTY
Jóhann Jóhannsson tónskáld lést 9. febrúar, 48 ára að aldri. Það er óhætt að segja að ferill Jóhanns sé glæstur og magnaður og hér verður stiklað á stóru. Lífið heyrði í nokkrum vinum og kollegum Jóhanns sem minnast hans með hlýhug.Róbert Douglas leikstýrði Íslenska draumnum sem kom út árið 2000.Róbert Ingi Douglas, leikstjóri Íslenska draumsins „Ég sat á kaffihúsi og hann kom upp að mér og sagði mér að hann hafi séð stuttmyndina mína. Við þekktumst ekki neitt en ég kannaðist því ég var mikill aðdáandi Daisy Hill Puppy Farm. Hann spurði mig hvort ég væri ekki að fara að gera mynd í fullri lengd og ég játaði því. Hann spurði þá hvort mig vantaði ekki tónlist við myndina og ég sagði bara jú og spurði á móti hvort að hann væri að gera kvikmyndatónlist. Hann sagði jú og á tveimur mínútum vorum við búnir að græja þetta samstarf. Síðan var þetta bara ein af fallegustu kvikmyndatónlist sem ég hef heyrt. Við unnum mjög vel saman og hann skildi allar mínar pælingar mjög vel.“Árni Ólafur Ásgeirsson leikstýrði Blóðböndum, sem kom út árið 2006.Árni Ólafur Ásgeirsson, leikstjóri Blóðbanda. „Jói var með eindæmum gáfaður og hlýr maður, sem endurspeglaðist svo skýrt í tónlistinni hans. Ég man þegar við sátum í þankahríð í lítilli kjallaraholu í Vesturbænum og unnum að myndinni Blóðböndum. Það var svo gaman og gefandi að bralla þetta með honum því hann nálgaðist vinnuna sína á svo heimspekilegan hátt; af ótrúlegri dýpt og næmni. Í kjölfarið galdraði hann fram tónlist sem var ekki bara falleg, heldur var hugsun í hverju stefi. Eftir það fylgdist maður með gleði og stolti með því hvernig hann vann sig upp úr þessum sjarmerandi kjallara, yfir í að verða eitt virtasta kvikmyndatónskáld heims. Það kom mér samt ekkert sérstsaklega á óvart hversu ótrúlegum árangri hann náði – slíkir voru hæfileikarnir. Samt var hann alltaf jafn hógvær og ljúfur. Það er ekki oft sem maður nýtur þess heiðurs á lífsleiðinni að kynnast og vinna með fólki eins og Jóa. Hann var einfaldlega „unique“ á svo margan hátt.“Sigurður Björn Blöndal, meðlimur HAM „Jóhann var mjög mikilvægur hlekkur í þróun HAM. Koma hans í hljómsveitina opnaði ýmsa möguleika og við leyfðum okkur að kanna nýjar lendur. Hans snilligáfa hefur haft áhrif á allt sem við gerum með beinum og óbeinum hætti.“Ólafur Arnalds, tónskáld „Ég þekkti Jóhann ekki vel en þessi sena af ný-klassískum tónskáldum er ekki sérstaklega stór svo leiðir okkar lágu óhjákvæmilega saman. Ég leit upp til hans og sýn hans á listina hafði mikil áhrif á mína eigin listsköpun.“Þrjár kvikmyndir með tónlist Jóhanns koma út á þessu ári. Það eru myndirnar The Mercy, Mandy og Mary Magdalene.„Það er mér sérstaklega minnisstætt þegar hann var að gera tónlistina fyrir Mother!, mynd Darrens Aronofsky, og áttaði sig á eftir margra mánaða vinnu að myndin var einfaldlega betri án tónlistar.“ Það þarf virkilega sterkan listamann til þess að setja egóið sitt til hliðar og átta sig á að verkið er betra án hans. Þetta lýsir Jóhanni sem listamanni ótrúlega vel – hann þurfti að fara í gegnum ferlið og semja tónlistina til að komast að þessari niðurstöðu. Að mínu mati inniheldur kvikmyndin Mother! ennþá tónlist eftir Jóhann. Tónlistin er bara þögn, þrúgandi þögn,“ segir Ólafur.Tímalína1988 Stígur sín fyrstu skref í tónlist með hljómsveitinni Daisy Hill Puppy Farm.1991 Jóhann spilaði með hljómsveitinni HAM um skeið.1993Vinnur með Páli Óskari að hans fyrstu sólóplötu, Stuð.1994Átti stóran þátt í gerð fyrstu plötu Ununar, Æ.1999Jóhann er einn stofnenda Apparat Organ Quartet sem hefur störf þetta ár og gefur út samnefnda plötu. Jóhann, ásamt Hilmari Jenssyni og Kiru Kiru, stofna Tilraunaeldhúsið, eða Kitchen Motors.2000Fyrsta myndin sem Jóhann samdi tónlist fyrir var költmyndin Íslenski draumurinn árið 2000. Síðan samdi hann fyrir fleiri myndir eins og Maður eins og ég, Dís og Blóðbönd.Jóhann ásamt leikkonunni Felicity Jones eftir Golden Globe-hátíðina árið 2015 þar sem hann var heiðraður fyrir The Theory of Everything.NORDICPHOTOS/GETTY2002 Fyrsta sólóplatan, Englabörn, kemur út.2004Önnur sólóplatan, Virðulegir forsetar. 2006 IBM 1401, A User’s Manual kemur út. Einnig smáskífan The Sun’s Gone Dim and the Sky’s Turned Black. Þar að auki kemur út fyrsta plata hrollgervlasveitarinnar Evil Madness, þar sem Stilluppsteypa, Jóhann, DJ Musician, Curver o.fl. sameina krafta sína. Nefnist hún Demon Jukebox.2008 Vann til verðlauna fyrir stuttmyndina Varmints á Rhodes Film Festival og á Sapporo Short Film International-hátíðinni. Sama ár kemur út platan Fordlandia.Kvikmyndin Sicario kom út árið 2015.2011 Platan The Miners’ Hymns kemur út. 2012 Jóhann var tilnefndur til tvennra verðlauna fyrir kvikmyndina Mystery og hreppti önnur þeirra. Það eru verðlaunin Golden Horse Awards og Asian Film Awards. Hann vinnur þau fyrrnefndu.2014 Jóhann vinnur Golden Globe verðlaun fyrir tónlistina í The Theory of Everything. Er einnig tilnefndur til Óskarsverðlauna, BAFTA-verðlaunanna og Grammy-verðlaunanna.2015 Tilnefndur til Óskarsins og BAFTA fyrir tónlistina í Sicario. Platan End of Summer kemur út ásamt hljóðrás Sicario.2016 Hlaut World Soundtrack-verðlaun sem besta kvikmyndatónskáld ársins. Tilnefndur til bæði Golden Globe-verðlauna og BAFTA-verðlauna fyrir tónlistina í Arrival. Síðasta sólóplata Jóhanns, Orphee, kemur út.2017 Er tónlistar- og hljóðráðgjafi við gerð myndarinnar Mother!2018 Þrjár kvikmyndir með tónlist Jóhanns koma út á þessu ári. Það eru myndirnar Mandy, Mercy, og Mary Magdalene.
Bíó og sjónvarp Menning Tengdar fréttir Þúsundir minnast Jóhanns á samfélagsmiðlum Greint var frá andláti Jóhanns Jóhannssonar tónskálds í dag en hann fannst látinn á heimili sínu í Berlín í gær. 10. febrúar 2018 19:45 Tvenna með tónlist úr smiðju Jóhanns Annað kvöld verða sýndar stórmyndirnar Arrival og Sicario á Stöð 2 Bíó í minningu Jóhanns Jóhannssonar tónskálds sem lést síðastliðinn föstudag. 13. febrúar 2018 13:30 Jóhann Jóhannsson látinn Jóhann Jóhannsson tónskáld er látinn. Fannst hann látinn á heimili sínu í Berlín í gær 10. febrúar 2018 17:23 Mest lesið „Það eru komnir þrír mánuðir síðan pabbi minn sá fram á það að geta ekki lifað lengur“ Lífið Janet Jackson biðst afsökunar á undarlegum ummælum Lífið Var talin vera hommi og lögð í einelti Lífið Borðar það sem alltaf hefur verið til og léttist og léttist Lífið Aldrei litið betur út þrátt fyrir alvarlegt slys Lífið „Það er alveg hægt að vinna rifrildið, en þá tapar sambandið“ Makamál Ísland með auga fuglsins Lífið Ein lausn er að liggja hlið við hlið og fróa sér Lífið „Við munum ekki eldast saman“ Lífið Ný plata frá Birgi Hákoni: „Ég er ekki lengur þessi gaur nema í tónlistinni“ Lífið Fleiri fréttir „Ég fæ morgnana til að vera bara ég“ Rokkþyrstir geta tekið gleði sína á ný Sigga Ózk verður Ariana Grande og flytur til Noregs Ávísun á eilíf vonbrigði að elta góða veðrið Frumsýning á Vísi: Landsliðsmaður gefur út lag með pabba sínum Taylor Swift jafnaði met Beyoncé á VMA Myndaveisla: Ofurfjör á Októberfest Sáu ekki fyrir sér vinsældirnar en fagna nú 36 árum Sergio Mendes höfundur Mas Que Nada látinn Gáfu tóndæmi af Barfly í beinni Aldrei séð annað eins: IceGuys seldi nítján þúsund miða Herra Hnetusmjör stoltur eftir tryllta afmælishelgi Samtalið órjúfanlegur hluti af sköpuninni Ótrúlega slakandi raftónlistarhátíð í fimmtánda skiptið Segir Marr hafa stöðvað endurkomu The Smiths Fjörutíu blaðamönnum boðið en enginn mætti Stormaði út með látum en gafst svo upp á skrifstofustarfinu Dásamar Charlie XCX þrátt fyrir orðróminn Slíðra sverðin og boða endurkomu sveitarinnar Snorri valinn á lista 20 undir 30 hjá tímaritinu IQ Valin á lista efstu tuttugu hjá Norðurlöndunum Helgi Björns með splunkunýtt tónlistarmyndband Chappell Roan biður um frið: „Konur skulda ykkur ekki skít“ Aron Can með stóra tónleika erlendis Haustinu fagnað með tónleikum á Kaffi Flóru Nýdönsk og ADHD fá hvorar tvær milljónirnar „Ég á mjög auðvelt með að standa með þessu öllu saman“ Pétur Jökull er Pj Glaze Tileinkar lagið trans fólki: „Hefur verið mikill tilfinningarússíbani“ Ingi Bauer, VÆB og Stefán Berg bjóða upp á Stemningu Sjá meira
Þúsundir minnast Jóhanns á samfélagsmiðlum Greint var frá andláti Jóhanns Jóhannssonar tónskálds í dag en hann fannst látinn á heimili sínu í Berlín í gær. 10. febrúar 2018 19:45
Tvenna með tónlist úr smiðju Jóhanns Annað kvöld verða sýndar stórmyndirnar Arrival og Sicario á Stöð 2 Bíó í minningu Jóhanns Jóhannssonar tónskálds sem lést síðastliðinn föstudag. 13. febrúar 2018 13:30
Jóhann Jóhannsson látinn Jóhann Jóhannsson tónskáld er látinn. Fannst hann látinn á heimili sínu í Berlín í gær 10. febrúar 2018 17:23